Hitabylgja byrjuð er
bráðnaallar fannir.
Þú ert úti að þvælast ber
þótt það öðrum bannir.
Ég er líkt og fólk er flest
en flest það þykir ömurlegt.
Ég er líkt og fólk er flest
en flest það þykir ömurlegt.
Ég spyr hvorki kóng né prest
en konan mín samt veit allt best.
Ömurlegt hér finnst mér flest
á föstudegi langa.
Ömurlegt hér finnst mér flest
á föstudegi langa,
því kannski þá mig kvelur mest
Kristí pínan stranga.
Lausamaður latur var ég
Lagðist svo í betl og flakk.
Lausamaður latur var ég
Lagðist svo í betl og flakk.
Nennan í mér frekar ferleg
en frúrnar sögðu alltaf takk.
Eftir vorið vetur kom
og verður fram að sumri.
Eftir vorið vetur kom
og verður fram að sumri.
Svo að heilagt orðið "OM".
ætla' eg margir kumri.
Vegna minna vandamála
var ég jaðarsettur.
Vegna minna vandamála
var ég jaðarsettur.
Grátkór allra syndasála
setja á sig grettur,
Gríslingurinn tekur tennur
tárast mjög og grætur hátt.
Grísæingurinn tekur tennur
tárast mjög og grætur hátt.
Margar þér mun gera glennur
Geta skapast af því sennur.
Veipaðu ekki væni minn
vanda það mun skapa.
Veipaðu ekki væni minn
vanda það mun skapa.
Gufuna þú gleypir inn
og getuni munt tapa.
Á klósettið nú karlinn fer
að kasta af sér vatni.
Á klósettið nú karlinn fer
að kasta af sér vatni
Tautar þá með sjálfum sér:
Seint held hlendnin batni.
Fylltistu ekki yfirburðarkennd
þá Íslendingar stígu á sviðið?
Fannstu ekki yfirburðarkennd
þá Íslendingar stígu á sviðið?
Eða kannski ert því marki brennd
að undirmáls telst flestallt liðið?
Ef þeir finna fleiri nótur,
fáum við þá betri lög?
Ef þeir finna fleiri nótur,
fáum við þá betri lög?
Helda að varla finnist fótur
fyrir því ég efast mjög.
Kannski fáum danskan dag
dásamlegt er þeirra lag.
Kannski fáum danskan dag
dásamlegt er þeirra lag.
Það okkar bætir allan hag
þá öll við raulum sama brag.
Hornstrandir ef heldur í
þú hittir fyrir kóna
Hornstrandir ef heldur í
þú hittir fyrir kóna
Sjenever er seldur í
sekkjum fyrir róna.
Vont er þetta kuldakast
og kosningar í vændum.
Vont er þetta kuldakast
og kosningar í vændum.
Um hreðjar sér að halda fast
er hollráðið frá bændum.
Það var sem við manninn mælt
og margur beit á agnið
Það var sem við manninn mælt
og margur beit á agnið
Eftirá svo verður vælt
vantar ekki magnið.
Sigríður nú heitir hann
Hlynur rollubóndi.
Sigríður nú heitir hann
Hlynur rollubóndi..
Hvergi sína fuðu fann
fllatur datt og góndi.
-------------------------------
Nú er sól og bongó blíða
bjart til fjalla að sjá.
Nú er sól og bongó blíða
bjart til fjalla að sjá.
Sumarið nú virðist víða
vera hér á stjá.
Hitabylgjan byrjuð er
bráðna allar fannir.
Hitabyljan byrjuð er
bráðna allir farnir.
Upp á hjalla fimur fer,
finn þar svalar tjarnir.
Þoku drungi súldar sút
svona er veðrið núna.