Upp mun brenna árið snart,
einnig ég - og fleiri.
Áfram verður kvein og kvart
og krafan verður meiri.
Árið ljóta endar brátt
annað við svo tekur.
[i
Árið ljóta endar brátt
annað við svo tekur.
Saman á jólum dufla dátt.
Dóra og hann Pétur..
------------------------------------
Stendur í brekku Brúsaskeggur
brosandi og glaður.[/i]
Stendur í brekku Brúsaskeggur
brosandi og glaður
þá gegnum hann með lenzu leggur
ljótur, vondur maður.
Stóri guli haninn heitir Trump
hann er vitur,
Stóri guli haninn heitir Trump
hann er vitur,
en ólíkt honum Forest góða Gump,
garnadritur.
Ætli fáist einhver svör
við öllum þessum spurningum?
Ætli fástist einhver svör
við öllum þessum spurningum?
Um þín meintu kostakjör
á kexi og þess smurningum.
Lygi er lygi, þótt
ljósmynduð sé.
Lygi er lygi, þótt
ljósmynduð sé.
Þetta er gnótt gnótt
gamalt tré.
--------------------------
Gamla brussan Bína
böðlast áframm enn.
Gamla brussan Bína
böðlast áframm enn.
Hún forðast flatsæng þína
og fær sér aðra menn.
Ég fékk hina vondu veiki
og vitið missi senn
Ég fékk hina vondu veiki
og vitið missi senn.
Fjandans bjáninn bleiki
böðlast um hlaðið enn.
--------------------------------
Bráðum kemur blessað vorið
og bætir skapið þitt.
Bráðum kemur blessað vorið
og bætir skapið þitt.
Ekki get ég af mér borið.
Ætla' að hella' á spritt
Ölvaður varstu alltaf til
eintómra vandræða.
Ölvaður varstu altaf til
eintómra vandræða.
Áfram gengur Billi bil
beint til upphæða.
Gamla mannsins þung er þraut
þarf hann brátt í göngur.
Gamla mannsins þung er þraut
þarf hann brátt í göngur.
Áður hann um holtin þaut
þó hagur væri þröngur.
Brjóttu aldrei bankaleynd
breiddu ekki út ljótar sögur.
Brjóttu aldrei bankaleynd
breiddu ekki út ljótar sögur.
Nýttu til þess gerfigreind,
glas af blút og lygabögur.
Þeir sem ættu að þurrka tár
af þjóðarinnar hvarmi
Þeir sem ættu að þurrka tár
af þjóðarinnar hvarmi.
Opna heldjúp svöðusár
í sálarinnar garmi.
Hér á landi bítast brátt
blóðþyrst þý um sjóði.
Hér á landi bítast brátt
blóðþyrst þý um sjóði.
Landann munu leika grátt
með loforðanna flóði.
Vinstri-hægri veltistjórn
víst er gott að stofna.
Vinstri-hægri veltisjórn
víst er gott að stofna.
Margir verða að færa fórn
flokkar munu klofna.
Páfuglsfjöður prýðir núna
panamahattinn minn.
Páfuglsfjöður prýðir núna
panamahattinn minn.
Paradísar- fínu -frúna
færðu að deita um sinn.
Maddaman í Miðflokkinn
mun víst ganga bráðum.
Madana í miðflokkinn
mun víst ganga bráðum.
Ákaft nú við stokkinn stýgur,
stælt og fylgir,báðum.
( B & M ) makalaust
maður verður hissa.
(B & M) makalaust
maður verður hissa.
Þá smalans góða glymur raust
Grunur verður vissa.
Varla er ég virtur svars
ef vitringana spyr.