Ég sagði í gamni við Gróu á Leiti.
Geturðu aldrei hætt að þvaðra?
þessu óðar bara breiti,
bjalvi, nú ég þrugla heiti.
---------------------------------
Sannleikur er sagna bestur
sagði Gróa á Leiti.
„Sannleikur er sagna bestur“,
sagði Gróa á Leiti.
„Alltaf er hann ágætastur
ef ég liðugt skreyti.“
Mér er tamt að ljúga af list
svo líki öllum
Mér er tamt að ljúga af list
svo líki öllum.
Karla ég hef marga mist
mælti Jón á völlum.
---------------------------------
Ég hef lítinn tíma til,
til að gera stöku.
Ég hef lítinn tíma til,
til að gera stöku.
Ekkert sem ég skrifa skil,
skila verki löku.
Tilvistin í táradal
er tímabundin
Tilvistin í táradal
er tímabundin.
Bæði fyrir hrund og hal
hentar ekki stundin..
-----------------------------
Hugan læt ég vafra víða
og viskubrunninn,kanna.
Hugan læt ég vafra víða
og viskubrunninn,kanna.
Dett beint oní hann og íða
ágætra að hætti manna.
Við flokkinn sem ég fylgi og kýs
fæstum virðist líka
Við flokkinn sem ég fylgi og kýs
fæstum virðist líka.
Ekki mun hinn gamli grís,
gamni þessu flíka.
-----------------------------
Þungt er yfir landsins liði
langt til Úkraínu.
Þungt er yfir landsins liðii
langt til Úkraínu,
þar sem vill það vinna að friði
og vitja og hjúkra Ínu
Þegar ég hengi þvottinn út
þenki ég um róna
Þegar ég hengi þvottinn út
þenki ég um róna.
þennan árans gamla grút,
glæpamann og dóna.
------------------------------------
Utan gátta er Bjarni Ben
björt er framtíð núna.
Utan gátta er Bjarni Ben
björt er framtíð núna.
Engeyinga góðu gen
gefa fólki trúna.
Sigmunds Davíðs góða grein
gagnast oss í lífsins þrautum.
Signunds Davíðs góða grein
gagnast oss í lífsins þrautum.
Hann er orðinn bita bein,
bjálfum frá norðurskautum.
-----------------------------------------
Hefur oft um víðan völl,
væblast karlinn fullur
Hefur oft um víðan völl,
væflast karlinn fullur.
Útúrstónd í Egilshöll
átján kýldi bullur.
Þótt ég feitan skuldi skatt
skortir ekki trúna
Þótt ég feitan skuldi skatt
skortir ekki trúna.
Ég í flýti á básinn batt,
bestu mjólkur kúnna.
------------------------------------
Í hægri pittinn Dabbi datt,
dæmalaust at tarna.
Í hægri pittinn Dabbi datt
dæmalaus at tarna.
Flaug svo upp og föt sín vatt
Fagurt söng: "Hvað er svo glatt?"
Varstu í vondri trú.
Vissir þú betur.
Varstu í vondri trú.
Vissir þú betur.
Horfinn varst heillum þú,
í heilan vetur.
----
Aðeins brá mér bænum af,
brann þá flest til kola
Aðeins brá mér bænum af,
brann þá flest til kola.
"Allt burt tók sem áður gaf
almættið" ég vola.
Ætli fáist einhver til
að opna með mér pakka?
Ætli að fáist einhver til
að opna með mér pakka?
Til þeirrar dáðar dæma vil
drengina á Bakka.
Hver er bezta ímynd ársins?
Er það ég sem góður maður
Hver er bezta ímynd ársins?
Er það ég sem góður maður?
Þú sem ljóða- knapi -klársins
kemst á pallinn efst - og glaður.
Upp mun brenna árið snart,
einnig ég - og fleiri.