Hún gaf mérgeldingahnapp
hin glaðbeitta blómarós.
Eftir fuður og stanslaust stapp
strunsaði, hún út í fjós.
_------------------------------
Raunamæddur er gamli Gvendur
getulaus orðinn er;
Raunamæddur er gamli Gvendur
getulaus orðinn er;
Varla yfir steini stendur
steinn - sem betur fer.
Náttúrubarnið er náttúrulaust
náttúruverndin brást.
Náttúrubarnið er náttúrulaust
náttúruverndin brást.
Náttúrulega er náttúruhaust
og náttúran við það mun þjást.
Allt í messi er í dag
hjá Argentínumönnum.
Allt í messi er í dag
hjá Argentínumönnum.
Belgar kunna' á bolta lag.
Blóð er ekki' á tönnum.
Settur var á sekrabekk
sómi lands og þjóðar.
Settur var á sekrabekk
sómi lands og þjóðar.
Ágætan, mjög, eftir hrekk
um hann kringdust sóðar.
Það er stuð að stela því
sem stundargleði veitir.
Það er stuð að stela því
sem stundargleði veitir.
Við kvennafar og kenderí,
klækjum margur beitir.
Rúðurnar regnið lemur,
raun er mér þessi tíð.
Rúðurnar regnið lemur,
raun er mér þessi tíð.
Við sumarið ey mér semur,
senn kemur hausttíð blíð.
Eftir því sem árafjöld
á mig hleðst, með látum,
Eftir því sem árafjöld
á mig hleðst með látum,
nálgast dauðans krumla köld.
Krist ég bið um varnarskjöld.
Ég er að safna fituforða
fyrir næstu hungurs neyð.
Ég er að safna fituforða
fyrir næstu hungurs neyð.
Ef að ég fæ allt að borða
öðrum þá sú leið er greið.
Þegar ég á orðið allt
og allir hinir snauðir.
Þegar ég á orðið allt
og allir hinir snauðir.
Dapur verð með allt og alt
allir hinir dauðir.
------------------------------------
Þungar eru þrautir hanns
þessa unga glæframanns.
Þungar eru þrautir hanns
þessa unga glæframanns.
Farið er nú fé hans allt,
fæst nú hvorki Prins né Malt.
Betra er að eyða því
sem aflað hafa vinir.
Betra er að eyða því
sem aflað hafa hinir.
Það væri mikið dirren dý,
draumur kæru vinir.
--------------------------------------------
Undir tók í hamra höllu
hlátur trölla voru slík.
Undir tók í hamra höllu
hlátur trölla voru slík.
Skrækir sem í skólabjöllu
skuku völl sem sóttu frík.
Mannréttindi mættu vera
meira virt í löndum heims.
Mammréttindi mættu vera
meira virði í löndum heims.
Þungar sorgir börnin bera,
berjast menn til annars geyms?
-------------------------------------
Áður man ég tíma tvenna,
trúir þú á huldar sögur?
Áður man ég tíma tvenna,
trúir þú á huldar sögur?
Skáldin öll í skinni brenna
að skapa úr þeim söngvar bögur.
Þvaglegg skaltu þrífa til
ef þjakar lekinn mikli.
Þvaglegg skaltu þrífa til,
ef þjakar lekinn mikli.
Ráðið nýta víst ég vil,
þó vöðvann líka hnykli.
Gísli Freyr er feiki þéttur.
Fimur þenur strengi..
Gísli Freyr er feiki þéttur.
Fimur þenur strengi..
Er hann nú við lygi léttur?
er ljótt að ég hann rengi?
Ætli nokkur niðurstaða
náist í því máli?
Ætli nokkur niðurstaða
náist í því máli?
Vil ei trúa blaðri blaða,
sem beita vondu táli.
Fannstu napra norðan átt
næða gegnum larfa þína?