Úti kaldur klaki er
Kjellinn flaug á hausinn.
En Besti flokkur bjargar mér,
bölvað að ég kaus hinn.
Þorir þú að botna brag
og barna þessa vísu?
Þorir þú að botna brag
og barna þessa vísu?
Ef þú gerir ljúfur lag
legðu þá til skvísu.
----------------------------
Snjórinn mínar herðar hrellir
hunds og lappar drífa.
Snjórinn mínar herðar hrellir
hunds og lappar drífa.
Er að þessu öllu sleppir
ég Everest mun klífa.
Fyrsta skref í ferðalag
af fimi skaltu taka.
Fyrsta skref í ferðalag
af fimni skaltu taka.
Utangátta einn dýrðardag
drullast ég til baka:
--------------------------------
Kindum mínum gef á garða
góða töðu úr hlöðunni.
Kindum mínum gef á garða
góða töðu úr hlöðunni.
Makrílinn svo mig læt varða,
mok'onum úr vöðunni.
Ætli verði eitthvert hlé
á utangáttaþrætum?
Ætli verði eitthvert hlé
á utangáttaþrætum?
Vonandi að finnist fé
frá urðarkattarspætum.
-------------------------------
Vetrar harka og fibul frost
frónbúa nú hrellir.
Vetrarharka og fimbulfrost
Frónbúa nú hrellir.
Í veðri slíku verða lost
vænstu manndómsbellir.
Læt ég vonda veðurspá
sem vind um eyru þjóta.
Læt ég vonda veðurspá
sem vind um eyru þjóta.
Að sinni bara sit ég hjá
og sef, með dún til fóta.
Svellin verða helst til hál
er hlákan blauta kemur.
Svellin verða helst til hál
er hlákan blauta kemur.
-ynd nú eru veður vál-
vindur rúðu lemur.
---
Kyngir snjónum ofan ótt,
allt í kaf nú fennir.
Kyngir snjónum ofan ótt
allt í kaf nú fennir.
Blotinn kemur næstu nótt
og niður í læki rennir.
-----------------------------------
Mér leiðist þetta kulda kast,
kær er mér sól og blíða.
Mér leiðist þetta kulda kast,
kær er mér sól og blíða.
Í hitapokann held ég fast,
og hryn svo líka íða.
Ofankoma - undankoma -
er þar nokkur munur?
Ofankoma- undankoma
er þar nokkur munur?
Þessi spurning vakti vomur.
Varð til illur grunur.
Silí-konan sexía
sýndi júgur troðin.
Silí-konan sexía
sýndi júgur troðin.
Lærist kannski lexía:
laumast að þér voðinn.
Á barnum fiska brjóstin stór
og borga sig án tafar.
Á barnum fiska brjóstin stór
og borga sig án tafar.
Og í sig ákaft belgja bjór
börn,ömmur og afar.
--------------------------------------
Þettað mér hann sannast sagði
Samúel á næsta bar.
Þettað mér hann sannast sagði
Samúel á næsta bar.
Oní sig svo ákaft lagði
öltunnu og viskýkar.
Drottningarnar dressa sig,
á diskó sér svo skella.
Drottningarnar dressa sig
á diskó sér svo skella.
Dansa óðar sving og svig
svört er í hópnum mella.
-----------------------------
Útá túni gæsir ganga,
göngulagið ekki nett.
Útá túni gæsir ganga,
göngulagið ekki nett.
Eins og peyjar áfram spranga,
ættu að fá sér núpó-létt.
Loforðin í ermum eru,
erfitt mjög að ná þeim fram.
Loforðin í ermum eru
erfitt mjög að ná þeim fram.
svipar mjög til Pólskrar peru,
pínadoj og Atla dam.
----------------------------------------
Íslands hrausta fagra fé
og fiðruðu Íslensku hænur.
Þakka ábendinguna. froggi minn