— GESTAPÓ —
Hagyrðingar allra landa sameinist
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3 ... 358, 359, 360 ... 459, 460, 461  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
lappi 27/11/11 21:55


Bjóddu ekki balsybúl
í bæinn inn í kaffi.
Þó að hann sé kannski kúl
er karlanginn í straffi.
----------------------------------------
Sviðakjamminn kolugur,
kominn oní tunnu.

lappi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Heimskautafroskur 28/11/11 18:21

Sviðakjamminn kolugur,
kominn oní tunnu.
Hyrndur, svartur, hárugur,
haus af dauðri nunnu.

Kerald mitt af keti er fullt
og kæsta skatan bíður.

vér kvökum og þökkum
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Bullustrokkur 28/11/11 22:44

Kerald mitt af keti fullt
og kæsta skatan bíður.
Ég varla þarf að þola sult
Það held ég nú síður.

Þú ættir að kynna þér Kristmann
og kommúnistmann

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Mjási 3/12/11 22:50

Þú ættir að kynna þér Kristmann
og kommúnistmann.
Þá hefur víst fáviskan fryst mann
og froskur kyst mann.

Þó fannir flleki grundir
og fuglar goggi í tómt

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Barbie 4/12/11 00:19

Þó fannir fleki grundir
og fuglar goggi í tómt
hér finnast heitar sprundir
heyrt sagt frá því frómt.

Dannaðar eru dömurnar góðu
drengur haf gát á þér

Dr. Barbie von Mattel - YFIRLÆKNIR. . • Sendiherra Baggalúts í N-Ameríku, drottnari innfæddra þar, Forseti USA og sérleg hirðmey Júlíu miklu. Dýrkuð og dáð um aldur og eilífð.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
lappi 5/12/11 23:23

Dannaðar eru dömurnar góðu
drengur haf gát á þér
Á pallinum stúlkurnar stóðu
stæltar og bíða efir mér:
-------------------------------------
Vetrar hörku herðir enn
hríðar grimmdin svarta.

lappi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Heimskautafroskur 6/12/11 10:43

Vetrar hörku herðir enn
hríðar grimmdin svarta.
Og Lappi, eins og margir menn,
er mest í því að kvarta.

Karlmennskuna kenna má
af kveinstöfum og tuði.

vér kvökum og þökkum
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
lappi 6/12/11 14:31



Karlmenskuna kenna má
af kveinstöfum og tuði.
Hún er skrítin þessi þrá
og þörf á kvennmans skuði.
----------------------------------------
Gerið vinir bragar bót
bráðum koma jólin.

lappi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
7/12/11 07:16

Gerið vinir bragar bót
bráðum koma jólin.
Á póker- þá ég þeytist -mót
og þykist fara all-in.
---
Núna tifar tíminn hratt
að tímamótum.

Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
lappi 7/12/11 14:58


Núna tifar tíminn hratt
að tímamótum.
Brátt árið liðið farið flatt
flugeldum upp skjótum.
---------------------------------------
Jólasveinar karlar kátir
koma brátt og segja hó.

lappi
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Heimskautafroskur 7/12/11 18:57

Jólasveinar karlar kátir
koma brátt og segja hó.
Eins þótt páfann margoft mátir
munu jólin koma þó.

Ég heyri um ágætis umboð,
öruggan stað til að ver'á

vér kvökum og þökkum
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Barbie 7/12/11 23:22

Ég heyri um ágætis umboð,
öruggan stað til að ver'á
sölunnar þó leiðist leirhnoð,
lagleysu raulað við smá.

Jólalög mér valda vellu
viðbjóði og svima

Dr. Barbie von Mattel - YFIRLÆKNIR. . • Sendiherra Baggalúts í N-Ameríku, drottnari innfæddra þar, Forseti USA og sérleg hirðmey Júlíu miklu. Dýrkuð og dáð um aldur og eilífð.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Regína 8/12/11 09:18

Jólalög mér valda vellu
viðbjóði og svima.
Eyrum fyrir haf því hellu,
hvíl í verndarkima.

Öllum vil ég óska þess
að aðventuna þoli,

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Heimskautafroskur 8/12/11 17:54

Öllum vil ég óska þess
að aðventuna þoli.
Auðvelt með það, alltaf hress,
á hver drykkjusvoli.

Jólafrúkostfyllirí
finnst mér varla sæma

vér kvökum og þökkum
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Barbie 8/12/11 23:36

Jólafrúkostfyllirí
finnst mér varla sæma
sjeníver að sulla í
sautján flöskur tæma.

Ölæði hátíðum engum hentar
ósómi heimsins og nútímaböl,

Dr. Barbie von Mattel - YFIRLÆKNIR. . • Sendiherra Baggalúts í N-Ameríku, drottnari innfæddra þar, Forseti USA og sérleg hirðmey Júlíu miklu. Dýrkuð og dáð um aldur og eilífð.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Heimskautafroskur 9/12/11 03:07

Ölæði hátíðum engum hentar
ósómi heimsins og nútímaböl.
Svo koma á aðventu hvassyrtar, tenntar,
hvatirnar sterkar og heimta öl.

Nú skríð ég í koju og skelf eins og lauf
er skal ég til vinnu að morgni.

vér kvökum og þökkum
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Barbie 9/12/11 21:54

Nú skríð ég í koju og skelf eins og lauf
er skal ég til vinnu að morgni.
ósóminn holdgerfður með órennda klauf,
alllir þess bíð´að ég þorni.

Pabbi á afmæli passaðu þig
prýðisvel tókst því að gleyma

Dr. Barbie von Mattel - YFIRLÆKNIR. . • Sendiherra Baggalúts í N-Ameríku, drottnari innfæddra þar, Forseti USA og sérleg hirðmey Júlíu miklu. Dýrkuð og dáð um aldur og eilífð.
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Strokklokalok 9/12/11 22:37

Kvæði:

Pabbi á afmæli passaðu þig
prýðis vel tókst því að gleyma.
Vona að hann átti sig
að þú ert samt að reyna
-------------------------------------
Fátt eitt gott að frétta hér,
fölleit andlit skjánum á

        1, 2, 3 ... 358, 359, 360 ... 459, 460, 461  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: