Vondur er mér vandi´ á höndum
vandan leysi svona.
Við hér allir styrkir stöndum
stæðilegir það ég vona.
------------------------------------
Þú ert lútsins prýði Pó,
prúður öllum stundum
Þú ert lútsins prýði Pó,
prúður öllum stundum.
Gaman er því á gestapó,
gleðst ég öllum stundum.
Bögur yrkjast, bindast ljóð,
botnalistin er mér töm,
Bögur yrkjast, bindast ljóð
botnalistin er mér töm.
Ég bagsa hér í miklum móð
mærðarfullur, vantar löm.
-------------------------------------
Nú er úti vetrar veður
veröldin er orðin hvít.
Nú er úti vetrarveður
veröldin er orðin hvít.
Í dyngju minni bíður beður,
brátt ég ligg og hrýt.
Sumardekkin sólinn einn,
svíf um götur allar.
Sumardekkin sólinn einn
svíf um götur allar.
Fordinn minn er hvítur hreinn
hljóðlát vélinn mallar.
--------------------------------------
Gamall bíll umm vegi valsar
varasamur mér og þér.
Gamall bíll um vegi valsar
varasamur mér og þér.
Líkt og dansi suðrænt Salsa
sveiflast hann á undan mér.
Kári er í herjans ham,
á Höfðanum er allt að fjúka.
Kári er í herjans ham,
á Höfðanum er allt að fjúka;
í Nepal jafnt sem Notre Dame,
norðangarri skekur búka.
---------------------------------
Öll él birtir upp um síðir,
eða svona hérumbil
Öll él birtir upp um síðir,
eða svona hérumbil;
internetsins árshátíðir
eru stanslaust glæfraspil.
---
Ekki er login saga sönn,
sagði vitur maður.
Ekki er login saga sönn,
sagði vitur maður.
Upp þó vafðist tunga um tönn
er trúar- kenndi -slaður.
Frönsk er súpan, full af lauk
og fínum bræddum osti.
Frönsk er súpan, full af lauk
og fínum bræddum osti.
oní maga óðar rauk
öll að minnsta kosti.
lengur engan ergir snjór
allur burtu þýddur.
Lengur engan ergir snjór
allur burtu þýddur.
Ég upp til heiða fymur fór
fötum kulda skrýddur.
--------------------------------
Aftur spá þeir regni og rosa
raun er mér af vætunni.
Aftur spá þeir regni og rosa
raun er mér af vætunni.
Þá er betr'að bæla mosa
með bústnu heimasætunni.
---
Fari það í fúlan pytt,
Framsókn óheft lýgur.
Fari það í fúlan pytt,
Framsókn óheft lýgur.
Eins og fylli- íhalds -bytt-
-a um dálka mogga smýgur.
Fjan- er laus nú fjarska -dinn,
fram- nú -sókn- hér skrôkvar -in.
[i]
Fjan -er laus nú fjarska -dinn
fram nú -sókn -hér skrökvar-in.
Ekki þessi heldur hinn
heim svo læðist aumingin.
------------------------------------------
Að mér sækir þreita þung
þrútin augun stara.
Að mér sækir þreyta þung
þrútin augun stara
stöðugt á minn úldna pung.
Útaf hverju? -Bara.
---
Mjólk er talin tönnum góð
og tyggigúmmí líka.
Mjólk er talin tönnum góð
og tyggigúmmí líka.
Börnin ungu heima hljóð
hreinum jögslum flíka,
----------------------------
Ekki skaltu á baðið brölta
ber að neðan vinurinn,
Ekki skaltu á baðið brölta
ber að neðan vinurinn
Því staur og kúlur skakkar skrölta
og skín á hvítan botninn þinn.
Fingur leita á leyndum stað
löngununum sinna
Fingur leita á leyndum stað
löngununum sinna.
Mikil undur karlinn kvað
kólvi vildi brynna.
----------------------------------------
Skelving liggur Gunna gleið
Grímur pumpar tólið.