Símann virðast sumir telja
sérstaklega flókinn.
Skyldi þessa skaufa kvelja
skrásett símabókin?
---
Ef þér leiðist, lestu þá
lærdómskver, sem getur
Ef þér leiðist, lestu þá
lærdómskver, sem getur,
er kastað hefur eldinn á,
yljað þér í vetur
Lognist út af sumarsól
sigli ég til Kína
Lognast út af sumarsól
sigli ég til Kína.
Horfi nú yfir bygðu ból
og bjargráðs geymslu mína.
------------------------------
Fer ér brátt til Benidorm
brosandi og glaður.
Fer ég brátt til Benidorm
brosandi og glaður.
Ei er það í nútíð norm
nostalgíumaður
Heyr mig góður himnasmiður
Hvers nú skáldið biður þig
Heyr mig góður himnasmiður
Hvers nú skáldið biður þig:
Í Lútinn hérna líttu niður
og ljóstu nokkra fyrir mig.
Hlebba, Lappa, Hugfeð, Pó,
Hafralóns og ZNatan
Hlebba, Lappa, Hugfeð, Pó,
Hafralóns og ZNatan.
Eitt sinn þeir hér orktu nó(g),
er nú lokuð gatan.
Seglar geta svefninn bætt
er sagt í Penn og Teller.
Seglar geta svefninn bætt
er sagt í Penn og Teller.
Þessa hef ég þeygi gætt
því hver nótt mér hell er.
Með hugarorku hnífapör
hneigði Uri Geller
Með hugarorku hnífapör
hneigði Uri Geller.
Mögnuð um það mynd var gjör
sem má telja best seller.
Víst má nota bílabón
ef bera þarf á skallann.
Víst má nota bílabón
ef bera þarf á skallann.
Algert mér þú finndist flón
færi á þig allan
Veslings greyin væla nú
Vilja Þráin aftur
Veslings greyin væla nú
Vilja Þráin aftur.
Á honum mikla hafa trú
þó hann sé fylliraftur.
Hreyfingin er heldur stöð,
hrekjast mun af þingi.
Hreyfingin er heldur stöð,
hrekjast mun af þingi.
Bara að ekki yrði kvöð
að Árni meira syngi.
Rigni meira munum við
meyrna inn að beini
Rigni meira munum við
meyrna inn að beini
hættu góði guð og þið
að gubba svona úr leyni
Eitt sinn þótti afar gott
að elska guð sinn herra
Eitt sinn þótti afar gott
að elska guð sinn herra
að krjúpa á hnéin, kyngja vott
og kannski fá einn hnerra
Hitti ég bráðum hana Gerði
hún kann ei að ljúga
Hitti ég bráðum hana Gerði
hún kann ei að ljúga
(Viðurkenndi að var með Herði ,
Valda, Gísla, Atla og Merði,
Hirti, Gunna, Halli, Verði
því hramminn vildi'ei sjúga.
og frekar velur bjúgu en bjúga)
Beðjurnar frá Bildudal
blíðar eru og vænar
(Eitt sinn þótti afar gott
að elska guð sinn herra
viska sumra virðist spott
virðing er að þverra.)
Beðjurnar frá Bildudal
blíðar eru og vænar
Arnarfjarðar eina val
eru baunir grænar.
Hálfvitar frá Húsavík
höfðu góðan sigur
Hálfvitar frá Húsavík
höfðu góðan sigur!
Keppnin öll var engu lík
kollhnís fór einn digur!
Hafur einn með hökutopp
hélt í Þorgeirsbola.
Hafur einn með hökutopp
hélt í Þorgeirsbola.
Bráðum sagði Boli: Stopp!.
Boli fór að vola.
---
Út af hverju er ég hér,
en ekki þar?