— GESTAPÓ —
Hagyrðingar allra landa sameinist
» Gestapó   » Kveðist á
        1, 2, 3, ... 459, 460, 461  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 3/9/06 00:57

Gott er að vera glórulaus,
gaman mikið af því hlýzt
Og vera reifur* með ofsa raus*
því rokið út út botni skýzt.

Gleymdu ekki góði minn
gríninu hér um árið

---------------------------------
* Hallóhalló - hér eru stuðlar á röngum stað . . .
Hið pottþétta trix er að staðsetja annan þeirra í þriðja áherzlulið - þá á ekkert að geta klikkað .

( T.d. : Og vera glaður með rosa raus ) / vinsemd - z n ó j -

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 3/9/06 02:26

Gleymdu ekki góði minn
gríninu hér um árið
Enn ég sama fögnuð finn
er fékkstu magasárið.

Oftast nær þó ekki hlæ
ef aðrir kvalir líða.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 3/9/06 02:29

Oftast nær þó ekki hlæ
ef aðrir kvalir líða.
Syng ég oft bæjobb bæbæ
og bið svo um að ríða

Kannski hefur kallað hann
‹Klórar sér í höfði›

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 3/9/06 02:38

Kannske hefur kallað hann
klórar sér í höfði
Sjái einhver sjúkan mann
sérhver manninn stöðvi.

Dýpri ljóðin verða varla
viskan út úr flæðir

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 3/9/06 02:40

Dýpri ljóðin verða varla
viskan út úr flæðir
Hlustum hressa nú á karla * He-hemm. Stuðul í þriðja braglið, takkfyrir. ( Sjá ath.semd héraðofan)
heyrðu, einum blæðir

Vísna- málsins visku - bók
vinnu- góði -þjarkur

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 3/9/06 02:55

"Hlustum nú á hressa karla" hefði verið í góðu lagi

Vísna- málsins visku - bók
vinnu- góði -þjarkur
Hampar oftast hörðum lók
hrikalegur svarkur

Vitið fjara virðist út
Vímus gerist fullur

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 3/9/06 02:57

Vitið fjara virðist út
Vímus gerist fullur
Betra en á Baggalút
bráðum dreifist sull

Kannski ættum ærlega
ævinlega að drekka

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

Ívar Sívertsen mælti:

Kannski ættum ærlega
ævinlega að drekka

Kannski ættum ærlega
ævinlega að drekka.
Kveðju þakka, kærlega,
á kortinu frá Mekka.

--------------------------
Nú er mjögsvo mál að linni
minni törn á Gestapó;

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Isak Dinesen 3/9/06 04:15

Nú er mjögsvo mál að linni
minni törn á Gestapó;
má ég, vinur, eiga inni
aðra hjá þér vísufró?

á fögrum degi er sólin sést
sit ég jafnan inni og grána

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Síra Skammkell 3/9/06 05:21

Á fögrum degi er sólin sést
sit ég jafnan inni og grána.
Það hefur milli manna frést
að mikið fáir þér í tána.

Áfengi í stríðum straumum
streymir oní fólkið hér.

Skammkell sýra. Æsti prestur og Guðafræðingur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Upprifinn 3/9/06 12:01

Áfengi í stríðum straumum
streymir oní fólkið hér.
af sér sleppir öllum taumum
ef að vel það skemmtir sér.

kvæði hestar klám og öl
kostaléttar frillur

Ríkissáttasemjari Baggalútíska heimsveldisins. Vonbiðill hinnar keisaralegu hátignar, hirðskáld og varavaravarakeisari. Níðskáld hinnar konunglegu hirðar. Nánast óþægilega kurteis...Besserwisser og Negradýrkari.‹Ljómar upp.›
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Útvarpsstjóri 3/9/06 13:04

kvæði hestar klám og öl
kostaléttar frillur.
Laus er nú við lífsins böl
laus við hreinlífs villur.

ooh, of seinn

Fjósamaður Heimsveldisins - Eigandi allra prófskírteina Herra Hafralóns - Fjölmiðlafulltrúi RBB
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Limbri 3/9/06 13:05

kvæði hestar klám og öl
kostaléttar frillur
fræði prestar fám og böl
feiknagóðar pillur

Hmmm, já, seinir erum við gamlingjarnir.

-

Þorpsbúi -
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Útvarpsstjóri 3/9/06 13:18

frelsarann og framsókn kjós
finndu Jón og drottinn.
framsóknin er frelsis ljós
friður þaðan sprottinn.

Sit á krá með krús af bjór,
krónum mínum fækkar.

Fjósamaður Heimsveldisins - Eigandi allra prófskírteina Herra Hafralóns - Fjölmiðlafulltrúi RBB
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 3/9/06 18:01

Sit á krá með krús af bjór
krónum mínum fækkar
Dragðu ögn að drýgja hór
dráttarverðið lækkar.

Burðugt var ei brokk í nótt
brussan sprakk úr hlátri.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Isak Dinesen 3/9/06 18:29

Burðugt var ei brokk í nótt
brussan sprakk úr hlátri.
þó að brókar- sé með -sótt
og svelgdist á á slátri

klæmast hérna kappar á
klámið fagurt þykir

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Isak Dinesen 3/9/06 19:03

þó er ykkur vorkunn vinir
að vilja þetta stunda
æðri vorkunn eiga hinir
er ekki lengur munda

um hvað er annað kært að yrkja
en konur, vín og unað?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vímus 3/9/06 19:04

þó er ykkur vorkunn vinir
að vilja þetta stunda
aldrei verð ég einsog hinir
í allt þeir vilja brunda.

Aðeins of seinn

        1, 2, 3, ... 459, 460, 461  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: