Nú er mál að hefja leik aftur. Upprifinn var með stæla og vill leikinn aftur. Gersovel, þú mátt byrja að spyrja.
ég vildi bara vita hvaða spurning hefði verið í gangi af því að ég var óvirkur í Tinnaleiknum síðustu vikurnar í vor.
en ég spyr samt.
í hvða bók náði Tobbi sér í risaeðlubein?
Voru það kristalkúlurnar sjö?
ekki svo að ég muni nei.
Hmmm... þetta gerðist á einhverju safni skjátlist oss eigi. En í hvaða bók munum vjer eigi en getum þó útilokað margar. Var þetta e.t.v. í bókinni Svaðilför í Surtsey ?
varla
Fjandinn, eftir þessu man ég en eigi nafni bókarinnar...
Veldissproti Ottókars?
Veldissprotinn var það og Goggi á spurnarréttinn.
Gríðarlega stórt vei. Vei!
Tinnafræðin eru nú heldur slöpp þessa dagana... reyni að hrista einhverskonar spurningu fram úr erminni.
Hvað hé... neibb.
Hvernig va.. neibb.
Í hvaða bók gerist sá merkilegi atburður að Kolbeinn spýtir ágætis viskíi úr munni sér og hver var nú ástæða þess?
Svarið er Tinni og pikkarónarnir. Vandráður var að prófa nýtt efni er olli því að sá er það innbyrti fjekk ógeð fyrir áfengi (eða öllum brenndum drykkjum eins og það var orðað í bókinn).
Vissulega kæri Fuckov, vissulega.
Ein auðveld (vonandi) spurning því brátt hverfum vjer hjeðan um rúmlega tveggja vikna skeið:
Í hvaða Tinnabók smituðust Skaptarnir af blúblú-veiki og hvernig smituðust þeir ?
Var það ekki í ,,Myrkum Mánafjöllum" og þeir fengu eitthvert óþyngdaraflslyf hjá Vandráði og drukku ofan í það, eða eitthvað því um líkt...
Nei, þá fengu þeir bara 'kast' af veiki þessari. Þeir smituðust hinsvegar nokkru áður og gerðist það í annarri bók.
Þeir smituðust í Suður Ameríku. Í bókinni Fangarnir í Sólhofinu kannski... Klórar sér í höfðinu
Það var í Svartagullinu... hvernig þeir smituðust man ég ei.
Nei, var það ekki Krabbinn með gylltu klærnar? Nei... Svarta gullið! Já, það var í eyðimörkinni. Var það ekki annars? Klórar sér í höfðinu