algjörlega óþolinn, drengstaulinn, hefur á sér gætur um nætur, þyggur ýmiskonarbætur, étur gulrætur.
Næturgölturinn fer á stúfana á hverju kvöldi klukkan 23. Hann fer síðan að sofa klukkan 8 á hverjum morgni.
Jú, vjer könnumst við sumt af þessu og getum vjer eigi neitað því að viss ljettir er að vjer skulum eigi vera einir um þessi einkenni. Minnkar það líkur á að vjer þjáumst af einhverjum lífshættulegum sjúkdómi.
Eitt áberandi einkenni er að vjer höfum óvenju oft þurft að opna munninn upp á gátt í dag þó það sje algerlega ástæðulaust því hægt er að tjá sig með viðunandi hætti á Gestapó án þess að opna munninn.
Þetta er skæður smitsjúkdómur.
Ég þjáist af þessu af og til, en vegna sveigjanlegs sólarhrings ber minna á þessu í seinni tíð.
Þó var laugardagurinn síðasti mjög erfiður og kenni ég Næturóþolinu algjörlega um.
Næturóþolið búið að ná tökum á mér.
Ég opna munninn upp á gátt í sífellu og augnalokin eru tekin að þyngjast.
Spurning um hvort ég kemst inn í rúm áður en ég verð óþolinu að bráð.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að fram eru komnar nýjar og stórmerkilegar upplýsingar um næturóþol. Þannig er mál með vexti að í hádeginu vorum vjer í jólahlaðborði einu miklu og góðu og urðum saddir vel. Svo virðist sem þetta auki næturóþol því þó sól sje hæst á lofti um það leyti er þetta er ritað höfum vjer mikla tilhneigingu til að galopna munninn án þess að hafa sjerstakan áhuga á því og aðeins erfiðara er að halda óskiptri athygli að því er vjer erum að gera, auk fleiri einkenna. Vjer fórum að vísu fremur seint að sofa í gærkvöldi (nótt) en það er miklu styttri tími liðinn frá jólahlaðborðinu og því finnst oss það afar grunsamlegt.
Kannast fleiri gestir við svipuð einkenmad,adZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZ Sofnar fram á lyklaborðið
Það tilkynnist hjer með opinberlega að eftir nokkuð langt hlje hyggjumst vjer núna halda áfram formlegum rannsóknum á næturóþoli. Mun næsta lota rannsóknanna hefjast eftir innan við hálftíma. Skál ! Sýpur á fagurbláum næturdrykk
Ég fæ stundum heiftarleg vökuofnæmisköst, ætli þau eigi eitthvað skylt við næturóþolið?
Ég fæ stundum heiftarleg vökuofnæmisköst, ætli þau eigi eitthvað skylt við næturóþolið?
Áttu við að þú fáir svona vökuköst? Náir ekki svefni án nokkura skýringa í 2 -3 daga?
Það hefur komið fyrir, en ekki lengi núna. En ég á við að ég sé með ofnæmi fyrir vöku og verð að fara að sofa. Stundum þvert ofan í það sem ég hafði ætlað mér.
Dæsir mæðulega og lítur út um gluggann
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer höfum gert stórmerkilega uppgötvun í tengslum við næturóþol. Svo virðist sem ferðir til sk. 'útlanda' geti í vissum tilvikum breytt tímasetningu næturóþols innan sólarhringsins. Nú finnum vjer t.d. ekkert fyrir næturóþoli en venjulega erum vjer á þessum tíma sólarhrings teknir þvert gegn eigin vilja að opna munn vorn í tíma og ótíma án þess að segja neitt. Kallar þetta á ítarlegar rannsóknir, m.a. á hvort um varanlega breytingu sje að ræða Kemur fyrir flóknum mælitækjum.
Dettur um snúrurnar frá mælitækjunum
Ákveður að hefja nýja rannsókn: Athugun á hvort líkur á að flækjast í mælitækjasnúrum aukist í hlutfalli við vaxandi næturóþol
Ákveður að ganga til náða, í rannsóknaskyni & í þágu vísindanna
Ég er sennilega haldinn dagóþoli sem gæti verið skylt næuróþoli... eða vampírisma...
Ég er haldinn næturóþoli, þ.e. íslensku næturóþoli. Ég þarf endilega að vakna þegar flestir heima á Íslandi eru að fara að sofa, og er því ætíð einn á Lútnum. brestur í óstöðvandi grát
Ég veit bara það að ég þoli ekki að vakna svona snemma.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að svo virðist sem tímasetning næturóþols innan sólahringsins hafi eigi breyst varanlega í kjölfar ferðar til sk. 'útlanda'. Nú erum vjer að byrja að finna fyrir næturóþoli en eigi gerðist slíkt í gærkvöldi Flækir sig í snúrur frá næturóþolsmælitækjum.