— GESTAPÓ —
Lútverskar Limrur
» Gestapó   » Kveðist á
     1, 2  
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Nafni 1/9/06 00:34

Limru skal hér læða inn
og lofaður mun afglapinn
Enter sem enn
eins og sjonpenn
Handleikur yfir oss himininn

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 1/9/06 00:40

Himnaríkið hér víst er
helvítið á brott nú fer
Dóp vín og daður
í dag er ég glaður
Gleður mig að sjá þig hér

KauBfélagsstjórinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 3/9/06 02:50

Út um allt þar arka fastir
anarkistar út í rastir
en fremstur fer
fyrir þér
flakkarinn hlewagastiR

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð
Tobbi heimalningur 5/9/06 19:58

Langan ég lít yfir veginn
læt sem ég sjái ekki Reginn
á stelpur hann ælir
og stráka hann tælir
Homminn víst þykir hinseginn

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 7/9/06 08:51

Hinseginn er hann kannski
hér það telur sá Franski
Giskar á
grætur smá
grennir mig kúrinn Danski?

KauBfélagsstjórinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 11/9/06 23:17

Það var víst þarna um árið,
að þakti mig allnokkuð hárið,
hárið er horfið,
hvarf eins og orfið
því drekk ég víst draumanna tárið.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ívar Sívertsen 11/9/06 23:28

Hæna gaut einu smá eggi
Eldsteikta hafði tvo leggi
Sá er hér mælir
gáfumenn stælir
og byrjaður að safna skeggi

Ráðherra drykkjarmála, spillingarmála, ummála og löggiltur oftúlkur, kantor í hverri einustu andskotans messu sem haldin er og spangólari ríkisins. Forseti skásambandsins.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 21/9/06 15:19

Mér þykir limran alltaf jafn skemmtileg, en sjaldan yrki ég hana... því miður...

Sjaldan er sérann ei prestur,
sinn þykir fuglinn sé bestur
kvöl er ei kvæði,
að kveða er æði
en limran er ljóðanna gestur.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst

Grasið er grænna hinu meginn,
galar haninn voða feginn.
Tók svo á rás
stökk yfir bás
og púturnar hlupu yfir veginn.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 2/10/06 14:20

Sé ég ei að ég sé svartsýnn
og sveiattan varl'er ég bjartsýnn
ég finn stundum feila,
er frussa og deila,
kannske er karlinn smá partsýnn.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 2/10/06 15:14

Jú jú minn hlégestur hlægjandi,
sem hrærir í orðunum plægjandi,
ljúffengir bitar
á Baggalút ritar,
um bölvaðar nautnirnar rægjandi.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Billi bilaði 13/10/06 21:44

Á lútinn við limrurnar sendum,
sem lýsa vel börmum og endum.
Í túninu heima
er torvelt að geyma
svo tvíræðan kveðskap frá lendum.

Sérlegt hirðkrútt og gæludýr hinnar keisaralegu hátignar • Sitjandi á kornflögu, bíð ég þess að vagninn komi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Offari 14/10/06 00:36

Í tilefni innleggs númer 3000.

Ofvirkur orðinn er maður
orðin hans ljótt drullublaður
Þrjúþúsund innlegg
nú þekja minn vegg.
Lútur er ljúfengur staður.

KauBfélagsstjórinn.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 27/10/06 15:23

Í tilefni innleggs númer 814:

Ég stóð útí skurði all skakkur,
því skó undir var hálfur tjakkur,
ég brosti og bitið,
var brúnt og mjög slitið,
í fjarska var fagri minn blakkur.

To live outside the law, you must be honest.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Rauði Folinn 15/12/06 12:52

‹Hrökklast aftur á bak og hrasar við›

Hverskonar hraksmán og gjallandi
heyrist í Baggalúts Skjall-landi
skítlegast eðli
skáldsins á seðli
skríður úr ristlinum, -fallandi

‹Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér›

RF

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Skabbi skrumari 22/1/07 15:37

Folaldið rauða er reitt,
roðnar og segir ei neitt,
rýkur og röflar,
ræfillinn bölvar,
fagurt er faxið og greitt.

To live outside the law, you must be honest.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Regína 21/4/07 11:23

Skabbi vel skrumar á íslensku
og skynugur virðist í bragmennsku.
Er lít ég á Lút
ég lengst hrekk í kút:
Því undirskrift hans er á útlensku!

Drottning Baggalútíu. Varaforseti Baggalútíu. Dulmálssérfræðingur Hlerunarstofnunar. Meykóngur.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
hvurslags 21/4/07 13:06

Óvinir eru þeir svarnir
og ættu því að vera farnir
Því finnst mér það flott
að nú flýja á brott
rækallans rafbarbararnir. ‹ljómar upp›

Yfir kalda sítrónu, einn um nótt ég bauva.
LOKAÐ
     1, 2  
» Gestapó   » Kveðist á   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: