Það tilkynnist hjer með opinberlega að eftir gífurlega umfangsmikla leit í ofurtölvukerfi forsetaembættis Baggalútíu fannst listi sá er hjer fer á eftir. Hugsanlegt er að í hann vanti einhverjar mjög nýlegar breytingar en þó finnst oss það fremur ólíklegt þar eð um virðist að ræða lista frá því skömmu (um mánuði) fyrir sumarlokun.
Nú er jafnframt að áliti voru rjetti tíminn til breytinga á ráðherra- og embættismannaembættum, t.d. að virkir Bagglýtingar fái embætti og einhverjum algjörlega óvirkum verði skipt út (þeir geta fengið embætti á ný ef þeir birtast, því fleiri ráðherrar og embættismenn því betra).
Hjer er listinn í heild sinni:
Mikill Hákon: Keisari
Herbjörn Hafralóns: Starfandi keisari
Krumpa: Keisaraynja
-- Vamban hirðstjóri
-- Hilmar harðjaxl ekill
-- Sverfill Bergmann reddari
-- Dillinger skriffinnur
-- Goggurinn hirðfífl
-- Upprifinn hirðskáld
Hilmar Harðjaxl: Varakeisari
hlewagastiR: Konungur
Regína: Drottning
-- Dula: prinsessa
-- Vladimir Fuckov: Prins
-- B.Ewing: Póló
-- Villimey: frilla konungs
-- Herbjörn Hafralóns: friðill drottingar
-- Jarmi: brottrekinn friðill drottningar
-- Kífinn: stallari
-- Günther Zimmermann: prótókollmeistari
-- Þarfagreinir: þarfagreinir
-- Upprifinn: konunglegt níðskáld og mannasiðavörður. Einnig böðull.
-- Hvæsi: lífvörður
-- Krossgata: hestamær
-- Nermal: hirðfífl
-- Tigra: hirðköttur og sjerlegur músaveiðari
-- Tumi tígur: hinn kötturinn
-- Úbbi: konunglegur útvarpsstjóri, almannatengill, blaðafulltrúi og pr-maður
-- Hexía de Trix: hertogaynja af Hellisgerði
-- Barbie hirðmey
-- Mús-Lí hirðmey
-- Hilmar harðjaxl skutulsveinn
-- Heiðglyrnir hinn hugdjarfi riddari
-- Jarmi drullusokkur
-- Sloppur skraddari Alheimsveldisins
-- Hakuchi: Hinn upphaflegi og nú horfni konungur (að líkindum rænt af óvinum ríkisins)
-- Júlía: Hin upphaflega og nú horfna drottning (að líkindum rænt af óvinum ríkisins)
Vladimir Fuckov: Forseti
Dula: Forsetafrú
Regína: Varaforseti
Goggurinn: Varaforsetaherra
Mosa frænka: Hin upphaflega og nú horfna forsetafrú (að líkindum rænt af óvinum ríkisins)
-- Andþór áróðursmeistari
-- Günther Zimmermann vörzlumaður Fjársjóðskammers forsetaembættisins
-- Texi Everto lífvörður og riddaralið
-- Kiddi Finni lífvörður
-- Hvæsi lífvörður
-- Huxi forstjóri PRESSECPOL
-- Rattati gerð ferðaáætlana
-- Galdrameistarinn einkabílstjóri
-- Sloppur yfirbílstjóri
-- Ívar Sívertsen forsetabílstjóri
-- Grágrímur hirðfífl
-- krossgata kvenskörungur
-- Skabbi skrumari yfirbruggari og forstjóri Áfengis og tóbaksverslunar Baggalútíu (ÁTVB)
-- Hvæsi yfirmatreiðslumeistari baggalútíska heimsveldisins og forsetaembættis Baggalútíu
-- Goggurinn gjöreyðingarvopnastjóri
-- Vamban yfirsmakkari
Hvæsi: Forsætisráðherra og ráðherraráðherra
Anna Panna: Símamálaráðherra og skrifstofustjóri ráðuneytaráðuneytis
Þarfagreinir: Símamálaráðherra, greifinn af Þarfaþingi
-- albin forstjóri Hlerunarstofnunar
Bjargmundur frá Keppum: Nefndarmálaráðherra og Utanríkisráðherra
-- Bjúrókratinn bjúrókrati
Hilmar harðjaxl: Krónprins
Montessori: Flugmálaráðherra
Billi bilaði: Fornleifaleyfismálaráðherra
J. Stalín: Aðalritari
Gísli, Eiríkur og Helgi: Gautaborgarmálaráðherra
Ég sjálfur: Áróðursmálaráðherra og sóunarráðherra
Hakuchi: Dóms- og hermálaráðherra
-- Sverfill Bergmann forstjóri ÖryggisLögreglu BaggalútÍSka lýðveldisins(ÖLÍS).
-- Don De Vito stríðsmangari baggalútíska heimsveldisins
-- Diotallevi tollstjóri Baggalútíu
-- Sverfill Bergmann póstmeistari ríkisins
Hóras: Fjölmiðlaráðherra
-- Ívar Sívertsen útvarpsstjóri
Tigra: Dýramálaráðherra
-- Dýrið lukkudýr baggalútíska heimsveldisins
Jóakim Aðalönd: Hertoginn af Baggalútíu
Jóakim Aðalönd: Baróninn af Baggalútíu
Nornin: Hertogaynjan af Baggalútíu
Nornin: Barónessan af Baggalútíu
Órækja: Fjarverandi ráðherraráðherra
Vamban: Landbúnaðarráðherra og hártískumálaráðherra
-- feministi fjallkóngur
-- Útvarpsstjóri fjósameistari
Vladimir Fuckov: Greifinn af Baggalútíufjalli
Nykur: Forsætisráðherra emeritus og varakonungur emeritus
Vladimir Fuckov: Kóbalt- og hergagnaframleiðsluráðherra og viðskiptaráðherra
-- Ívar Sívertsen forstjóri hergagnaframleiðsluverksmiðja Baggalútíu
-- Offari kaupfjelagsstjóri
Don De Vito: Innflytjendamálaráðherra
-- Anna Panna nýliðaskelfir
B. Ewing: Tryggingaráðherra
Vímus: Efnavopnaráðherra
Dularfulli maðurinn: Kosta- og kynjamálaráðherra
Dr Zoidberg: Heilbrigðisráðherra emeritus
Dula: Settur heilbrigðisráðherra
-- Dr. Gottfriedsen landlæknir
-- Barbie yfirlæknir
-- Hvæsi forstjóri óheilbrigðiseftirlitsins
-- Don De Vito settur forstjóri HSHB (Hátæknisjúkrahús Baggalútíu)
Hexia de Trix: Kakómálaráðherra og Alma Mater Baggalútíu
Ísdrottningin: Hálendismálaráðherra
albin: Tilræðisráðherra
Galdrameistarinn: Galdramálaráðherra
Skabbi skrumari: Sjávarútvegs- og olíumálaráðherra
Herbjörn Hafralóns: Fjármálaráðherra og trúarbragðaráðherra
Ívar Sívertsen: Menntamálaráðherra
-- Goggurinn skólastjóri Barnaskóla Baggalútíu
-- Haraldur Austmann málfarsráðunautur og yfirprófdómari
-- Ívar Sívertsen yfirmálfarsráðunautur og prófdómari
Golíat: Geimferða- og fjarskiptaráðherra
Júlíus prófeti: Fjelagsmálaráðherra
Glúmur: Kirkjumálaráðherra
-- Nermal: Páfi
-- Vestmann: Kardínáli
-- Rauðbjörn: Allsherjargoði
-- Tina St.Sebastian: Biskup
-- Offari: Biskup
Nornin: Umhverfisráðherra
-- Hakuchi: Veður(stofu)stjóri
Jóakim Aðalönd: Geymsluráðherra
Blástakkur: Fólskumálaráðherra
-- Haraldur Austmann: Forstjóri Rannsóknarrjettarins
-- Fári Egilsson: Forhirðir
-- Konstantín: Sýslumaður í Hrísey
Gunnar H. Mundason: Víkingamálaráðherra og yfiraðmíráll
Albert Yggarz: Íþrótta- og kvennamálaráðherra
Úrsus Akureyrensis: Karlamálaráðherra
Limbri: Upplýsingaráðherra og afþreyingarmálaráðherra
-- Hexia de Trix yfirbókavörður Baggalútíu og forstöðumaður Bóka- og skjalasafns Baggalútíu
Júlía: Smekksráðherra
-- Virgill Bali ruslakall
Mosa frænka: Hasarmálaráðherra
-- Hilmar harðjaxl ríkisskattstjóri
-- albin launmorðingi
-- Skari liðsforingi RASSAT (rosalegasta sjersveit allra tíma)
-- Anna Panna valkyrja og Elvis
-- Tina St.Sebastian verndari alls karlkyns
Brenjar: Seðlabankaráðherra
-- Sprellikarlinn skemmtanastjóri Baggalútíu
Muss S. Sein: Vísindaráðherra
-- Muss S. Sein: Hugsuður, hugmyndasmiður og heilari
Nafni: Soldán
Júlía: Siðferðis- og blygðunarkenndarráðherra
Víólskrímsl: Undirróðursráðherra
Fergesji: Gáfumálaráðherra
Ívar Sívertsen: Spillingarráðherra, stórvesír yfir Baggalútíu, sjeik af Kaffi Blút (með röri), hljóðfæramálaráðherra, guð
Fári Egilsson: Brunamálaráðherra.
Ferrari: Ráðherra tilgangslausra hluta
Goggurinn: Vandamálaráðherra
-- Upprifinn ríkissáttasemjari
Haraldur Austmann: Alþýðumaður
Smábaggi: Æðstistrumpur og njósnari
Sendiherrar
- Sendiherra Evrópu = Bjargmundur frá Keppum
- Sendiherra N-Ameríku = Barbie
- Sendiherra S-Ameríku = Jóakim Aðalönd
- Sendiherra Asíu = Vladimir Fuckov
- Sendiherra Eyjaálfu = Sverfill Bergmann
- Sendiherra Afríku = Mikill Hákon
- Sendiherra Suðurskauts, norðurskauts og annarra heimsálfulausra ríkja = Hilmar Harðjaxl
- Sendiherra Páskaeyja = Goggurinn
- Sendiherra á Satúrnusi: Jóakim Aðalönd
- Sendiherra á Júpíter og nágrenni: Vladimir Fuckov
Þráður með sama nafni um sama efni er til en honum hefur verið lokað til að hindra rugling. Hann inniheldur umræður frá því fyrir sumarið 2006. Hann er að finna hjer:
http://www.baggalutur.is/gestapo/viewtopic.php?t=1459
- Gæzlan
Fæ ég ekki að vera memm?
Hrökklast afturábak og hrasar við
Þjer eruð án embættis ?! Það verður að finna fyrir yður ráðherrastöðu strax. Einhverjar tillögur ?
Ansans. Ég sem var farinn að vonast til að maður gæti barasta skráð sig í embætti að eigin vali á hinum þræðinum . . .
Hvert í þreifandisjóðlogandiheitastahelv.........
Hvar er Galdramálaráðherrann? Og af hverju er ég ekki á þessum leiðindarpúkalista?
Brestur í óstöðvandi grát
Hrökklast afturábak og hrasar við
Þjer eruð án embættis ?! Það verður að finna fyrir yður ráðherrastöðu strax. Einhverjar tillögur ?
Uhh.. um... Klórar sér í höfðinu
Skoðar undirskriftina sína Hmmm... það vantar helminginn af titlinum mínum á þennan lista.
Svo kemur hvergi fram að ég sé Elvis! brettir upp á efri vörina
Hóstar Það þarf að uppfæra nafnið mitt.
Svo vill ég líka fá að stjórna óheilbrigðiseftirlitinu !
Krossleggur hendur meðan risa slökkvibíll fyllir sundlaug forseta af últra sterkum, fagurbláum drykk
Krossleggur hendur meðan risa slökkvibíll fyllir sundlaug forseta af últra sterkum, fagurbláum drykk
Nei, þú ert e-ð að misskilja. Sundlaugur er ekki forseti & hefur aldrei verið...
Klórar sér í höfðinu
Hvernig nærð þú að troða Sundlaugi í þetta mál ?
Hann hefur ekki sést hér enn, þannig að Vlad hlítur að mega geyma drykkinn sin í laug forsetahallarinnar þartil sundnámskeiðið kemst á koppinn. Hvíslar aðZ.natan Miðað við drykkju hans undanfarið á skabbalút, ætti laugin að verða orðin tóm um fjögurleitið.
Skoðar undirskriftina sína Hmmm... það vantar helminginn af titlinum mínum á þennan lista.
Svo kemur hvergi fram að ég sé Elvis! brettir upp á efri vörina
Hver er sá helmingur er vantar ? Og er kolefnið í líkama yðar á afbrigðilegu formi úr því að þjer eruð demantur ?
Varðandi Elvis þá eru til margir Elvisar ef oss skjátlast eigi. Og síðast er vjer vissum bjó hann (þeir/þær ?) á Mars.
Hóstar Það þarf að uppfæra nafnið mitt.
Vjer kunngjörum hjer með að nafn yðar hefur verið lagfært með formlegum hætti.
Pikkar í Vladimir
En óheilbrigðiseftirlitið ?
laumupúkast með langdræga kjarnorkuflaug inn til Vlads
Sökum næturóþols er óvíst að vjer náum að gera allar breytingar á listanum í nótt en þær verða örugglega gerðar á morgun nái næturóþolið tökum á oss Geispar, þiggur kjarnorkuflaugina og setur í frh. af því beiðni Hvæsa efst í forgangsröðina.
Skoðar undirskriftina sína Hmmm... það vantar helminginn af titlinum mínum á þennan lista.
Svo kemur hvergi fram að ég sé Elvis! brettir upp á efri vörina
Hver er sá helmingur er vantar ? Og er kolefnið í líkama yðar á afbrigðilegu formi úr því að þjer eruð demantur ?
Varðandi Elvis þá eru til margir Elvisar ef oss skjátlast eigi. Og síðast er vjer vissum bjó hann (þeir/þær ?) á Mars.
Hóstar Það þarf að uppfæra nafnið mitt.
Vjer kunngjörum hjer með að nafn yðar hefur verið lagfært með formlegum hætti.
Á listanum erum vér eingöngu skráð valkyrja en eigi verndari alls karlkyns. Sækir um umsóknareyðublað í þríriti fyrir umsókn um leiðréttingu
Og já, kolefnið mitt er óvenju vel samanþjappað og hart enda er ég hrikalega töff. Starir á síðasta orðið og veltir því fyrir sér hvort skrípaleg ofnotkun á því síðastliðinn vetur hafi gert það áhrifalaust. Ákveður að svo sé ekki
Verndari karlkyns ? Hugsar sig um
Hvernig fer það fram ?
Ert það þú sem dregur mig heim þegar ég drepst á Næturgeltinum ?
Þar sem Skammkell hefur ekki látið sjá sig síðan í október 2004 þá tek ég hér með við öllum hans skyldum!
Samþykkt Setur tilkynningu Ívars neðst í forgangsröðina því hann gleymdi að koma með mútur.
Verndari karlkyns ? Hugsar sig um
Hvernig fer það fram ?
Ert það þú sem dregur mig heim þegar ég drepst á Næturgeltinum ?
Einmitt! Styður höndum á mjaðmir og þenur brjóstkassannÍhugar að fá sér skikkju