— GESTAPÓ —
Ráðherra- og embættismannalisti Baggalútíu
» Gestapó   » Baggalútía
        1, 2, 3 ... , 37, 38, 39  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst

hlewagastiR mælti:

Hæst ber þar stöðu Villimeyjar sem er frilla konungs.

‹Ljómar upp›

Veiru og sýklavopnasérfræðingur Baggalútíu - Frilla Konungs - Líffræðikennari í Barnaskóla Baggalútíu - Kóbaltblá - Jólabarn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
dordingull 25/8/09 02:39

Er Baggalútía ekki lýðveldi? Við höfum hér ríkistjórn og forseta,! Svo hvað er þessi kóngsfígúra að vilja upp á dekk?
Haldið þið að þetta sé sirkus Billa Smart? Við erum ekki stödd í Bónusbúð þar sem þú kaupir kíló af sjófrystri ýsu á 500kall og þegar klakinn er brotinn utanaf þá eru 60grömm eftir. ÞJÓÐKJÖRIN FORSETI VOR, LENGI LIFI, en Óli Grís má hirða kóngapakkið! xTxT

Köngulóarapakonungsríkisarftakinn.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 25/8/09 22:34

Dorri: við erum líka með keisara. Hér er nefnilega þróuð stjórnskipan með þrískipt vald: forsetavald, keisaravald og konungsvald. Fjórða valdið er svo kaupfélagsstjórinn.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 25/8/09 23:56

hlewagastiR mælti:

Að ekki sé talað um kaupfélagsstjóraembætti Offara!

Þá bendi ég á að náhirðin mín (utan drottiningar) er enn óuppfærð með öllu, þetta er hirðin hans Haka. Ég rak reyndar engan en réði nokkra nýja. Hæst ber þar stöðu Villimeyjar sem er frilla konungs.

Það tilkynnist hjer með opinberlega að úr þessu hefur loksins verið bætt. Að auki hefur Offara og Gogginum verið bætt inn í tengslum við Kaupfjelag Baggalútíu og Barnaskóla Baggalútíu. Gerðum vjer samhliða því þá ánægjulegu uppgötvun að vjer erum viðskiptaráðherra en undir það hlýtur Kaupfjelagið að heyra. Getum vjer því fyrirskipað að þar verði stór hergagnadeild ‹Ljómar upp›.

Síðan viljum vjer vekja athygli á þessum orðum vorum á síðustu síðu:

Vladimir Fuckov mælti:

Don De Vito mælti:

Já góðan daginn og halló halló! Ég er eiginlega kominn með leið á þeim hlutverkum sem ég er með. Er ekki eitthvað nýtt og spennandi embætti í boði?!

Eigi væri vitlaust að endurskoða verulega ráðherra- og embættismannalistann með hliðsjón af nýjum tímum. Það vantar t.d. bæði forstjóra fyrir Bankasýslu baggalútíska heimsveldisins og forstjóra fyrir Gullbringusýslu baggalútíska heimsveldisins.

Jafnvel gæti verið áhugaverð tilbreyting að einhver annar en vjer myndi sjá um slíka endurskoðun í sjerstökum þræði en vjer myndum svo færa niðurstöðuna inn í listann fremst í þessum þræði. Don De Vito gæti t.d. orðið yfirembættaendurskoðunarstjóri (eða einhver annar hafi hann eigi áhuga). Þessa hugmynd má að sjálfsögðu ræða frekar hjer.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Don De Vito 26/8/09 18:54

Já, þetta er mjög freistandi staða og ég held hreinlega að ég taki hana. Ég er hins vegar í þónokkuð stopulu netsambandi þessa dagana og ekki líklegt að það lagist fyrr en eftir u.þ.b. þrjár vikur. Hins vegar get ég alveg hafið þennan umræðuþráð og komið öllu umsóknardótaríinu í gang og farið yfir það að u.þ.b. þrem vikum loknum.

Já veistu, ég held ég slái til.

Doninn • Stríðsmangari Baggalútíska Heimsveldisins • Innflytjendamálaráðherra, maðurinn með stimpilinn • Settur forstjóri HSHB • Stórlax
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Texi Everto 29/8/09 10:40

Vjer sækjum hjer með form- og opinberlega, og í sjöriti, um stöðu vinamálaráðherra. Sem meðmæli leggjum vjer fram titilinn „vinsælasta stúlkan“ frá síðustu átján árshátíðum ritstjórnarinnar. ‹Leggur alla nítján borðana huggulega á borðið fyrir framan ráðningarnefndina›

• Þetta innlegg á sér ekki endilega stoð í Gestapóleikanum • Söngmaður sólarlagsins og áhangandi ljósaskiptanna • Fjalldrottning Baggalútíu • Riddaralið • Texi Everto treve ixet • Áttavillingur • Vonbiðill Geitarinnar • Matætan frá Mývatni
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 29/8/09 11:34

Texi Everto mælti:

Vjer sækjum hjer með form- og opinberlega, og í sjöriti, um stöðu vinamálaráðherra. Sem meðmæli leggjum vjer fram titilinn „vinsælasta stúlkan“ frá síðustu átján árshátíðum ritstjórnarinnar. ‹Leggur alla nítján borðana huggulega á borðið fyrir framan ráðningarnefndina›

Átjan árshátíðir en nítján sigurborðar. Hmmmmm. Hér er mysa í maðkinum.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Texi Everto 29/8/09 13:34

Einu sinni var ég tvöfaldur í roðinu. ‹Roðnar og flissar›

• Þetta innlegg á sér ekki endilega stoð í Gestapóleikanum • Söngmaður sólarlagsins og áhangandi ljósaskiptanna • Fjalldrottning Baggalútíu • Riddaralið • Texi Everto treve ixet • Áttavillingur • Vonbiðill Geitarinnar • Matætan frá Mývatni
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dularfulli Limurinn 24/6/10 23:49

Er staða áfengismálaráðherra laus til umsóknar ?

Ef svo er, þá sækist ég hér með eftir því embætti.

‹Skálar með kokteilglasið í hendinni og sveran vindil í kjaftinum›

Sérlegur asnahalahanastélskokteilhristari og einkaþjónn. Sérfræðingur í Eskimóaflippum.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Blöndungur 17/9/10 18:18

Hvernig er staða sjávarútvegs-, landbúnaðar- og iðnaðarmála? Séu hér fyrirhugaðar breytingar á þessum efnum í átt til sameiningar, þá vil ég sækja um embætti tvinnamálaráðherra.
m.e.h.
Blöndungur

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Fergesji 17/9/10 21:41

Líklega mun Vamban eigi gefa upp stöðu landbúnaðarráðherra að svo stöddu, enda hefir hann reglulega mætt hingað að athuga ýmis mál.

Konungur Efergisistan • Gáfumálaráðherra • Flöt jörð - Slétt föt - Hrein trú • Áttum bestu endurkomuna árið 2008 • Sturtufíkill
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
hlewagastiR 17/9/10 22:59

Hér verða engin ráðuneyti sameinuð og hana nú!

Á borði mínu er hins vegar tillaga um að stofna ráðuneyti lesbískra karla. Ég sé ekki ástæðu til annars en að það verði þegar stofnað. sömuleiðis smurolíu- og sleipiefnaráðuneyti, ráðuneyti annarlegra áhugamála og ráðuneyti nefnda sem notaðar eru til að svæfa annarleg áhugamál.

Þetta ritar ósköp úldið, aldið skar. • er falskonungur forðum var.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Fergesji 17/9/10 23:25

Jafnvel mætti hýsa það allt í kynvilluráðuneyti.

Konungur Efergisistan • Gáfumálaráðherra • Flöt jörð - Slétt föt - Hrein trú • Áttum bestu endurkomuna árið 2008 • Sturtufíkill
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Dularfulli Limurinn 20/9/10 22:39

Hver er Ráðherramálaráðherra ???

Sérlegur asnahalahanastélskokteilhristari og einkaþjónn. Sérfræðingur í Eskimóaflippum.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Herbjörn Hafralóns 20/9/10 23:08

Dularfulli Limurinn mælti:

Hver er Ráðherramálaráðherra ???

Hvæsi er ráðherraráðherra. Ætli hans ráðuneyti nái ekki yfir þennan málaflokk?

Verðlaunaður séntilmaður. HEIMSMEISTARI í teningakasti 2007 og 2008. BLÁR.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nermal 21/9/10 21:30

Er embætti landssdómsskipara laust til umsóknar?

. Eigandi Bíkinieyja. Galdramaður svefnherbergisins.Rugludallur frá náttúrunar hendi. Páfi. Einkastrippari Næturdrottningarinar
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Blöndungur 21/9/10 21:36

Hvernig er með stöðu ráherra drykkja sem geymdir hafa verið í tunnum gerðum úr tréi - hefur verið skipað í hana?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Nermal 21/9/10 21:51

Eða embætti einstaklings sem fær há laun og bíl til afnota fyrir það eitt að mæta seint á skrifstofuna taka tveggja tíma matarhlé, fara snemma og gera aldrei neitt gagn? Ég skal fús taka það að mér

. Eigandi Bíkinieyja. Galdramaður svefnherbergisins.Rugludallur frá náttúrunar hendi. Páfi. Einkastrippari Næturdrottningarinar
        1, 2, 3 ... , 37, 38, 39  
» Gestapó   » Baggalútía   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: