Það tilkynnist hjer með opinberlega að nokkrar breytingar hafa verið gerðar í listanum í framhaldi af umræðum undanfarinna klukkutíma. Urðu breytingar m.a. hjá Önnu Pönnu, Galdrameistaranum og Upprifnum Bíður eftir mútum.
Ég veit ekki hvað ég vil vera!
Dýramálaráðherra?
Samþykkt Bíður eftir mútum.
Sýnir forsetanum tanngarðana sína
Ekki flottir?
Kemur með ýmsa ,,minjagripi'' úr ferð sinni til Bandaríkjanna Ég vil minna á að það þarf að uppfæra nafnið mitt og sæki ég hér með einnig um stöðu Nýlendumálaráðherra. Réttir Vladimir skjalatösku stútfulla af nokkrum afsalsbréfum frá fyrirtækjum úr Sílíkondalnum
Ræskir sig og spyr feimnislega:
Er ég ekki ennþá varaformaður Sundráðsins og í stjórn Ungmennasambandsins?
Veltir því fyrir sér hvort honum verði trúað fyrir frekari embættum hjá hinu opinbera
Hverjum er ekki sama?
Hverjum er ekki sama?
Oj, ógeðslega leiðinlegur. Kemur hérna inn bara með geðveikan skítamóral eitthvað bara... Ég er sko hættur að vera vinur þinn.
Eftir þessa sprengingu sem varð á Hrauninu þegar hasshundurinn fann fíkniefni á fangaverði
þá datt mér í hug hvort ekki væri þörf á sérstökum dópþefara hér?
Ég gæti vel hugsað mér að gera helvítis ósómann upptækan.
Ég gæti orðið fíkniefnaleitartígrisdýr?
Sniffar all hressilega út í loftið
Það tilkynnist hjer með opinberlega að nokkrar breytingar hafa verið gerðar í listanum í framhaldi af umræðum undanfarinna klukkutíma. Urðu breytingar m.a. hjá Önnu Pönnu, Galdrameistaranum og Upprifnum Bíður eftir mútum.
Ég veit ekki hvað ég vil vera!
Dýramálaráðherra?
Samþykkt Bíður eftir mútum.
Skoðar listann. Finnur nafnið sitt hvergi
Vantar ekki annars Stýrimann Fjárfestinga og Margfeldisútvíkkunar Baggalútíska Heimsveldisins (SFMB) ?
Ég held að þú þurfir að læra að bæta mætinguna áður en það er farið að treysta þér fyrir nokkru embætti ha!
Ég óska eftir því að öðlast embætti brunamálastjóra og þar með stjórna íkveikjum og öðru brenneríi! Skál!
Pikkar í Neró og hvíslar: Þú gleymdir mútunum.
Þar sem Skammkell hefur ekki látið sjá sig síðan í október 2004 þá tek ég hér með við öllum hans skyldum!
Ég veit ekki betur en ég sé hér.
Fer fram og lítur í spegilinn. Sér ekkert og hrökklast grátandi burt.
Ég ætlaði að sækjast eftir stöðu ráðherra trúmála. En það þýðir sjálfsagt lítið, úr því að ég er ekki.
Horfir dapur á peningabunkann sem hann neyðist sjálfsagt til að nota sjálfur. Uppgötvar svo að hann er ekki og getur þess vegna trauðla notað féð.
Þetta er erfitt.
Herbjörn er reyndar trúarbragðaráðherra og þarf að komast til botns í hvort það sje sami hluturinn. Fleiri embætti koma til greina, t.d. væri stórskemmtilegt að stofna trúarbragðalögreglu Ljómar upp.
Að auki hafa nokkrir ráðherrar og ráðamenn eigi sjest lengi, t.d. forsætisráðherrann, fjelagsmálaráðherrann, fólskumálaráðherrann, karlamálaráðherrann og seðlabankaráðherrann. Kann því að vera ástæða til að kanna með formlegum hætti hvort endurskipa beri í einhver þeirra embætta.
PS Til þeirra er hjer hafa lyklavöld: Rangur ráðherra- og embættismannaþráður er límdur, þessi á að vera það.
Ég óska eftir því að öðlast embætti brunamálastjóra og þar með stjórna íkveikjum og öðru brenneríi! Skál!
Ég styð þetta heilshugar. ÉG veit að hann hefur brennandi áhuga og kemur á brandferð þegar eftir honum er kallað. Hann skýst milli staða eins og eldibrandur! Réttur maður í þetta djobb!
Jæja Vlad. Ég er að huxa um að fara að múta fleirum með þessu Kóbalti sem ég sýndi þér á bls 2 þar sem þú virðist alveg hunza mig.
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Hrökklast afturábak og hrasar við
En vjer erum fyrir löngu búnir að bæta yður við listann ?? Hirðir múturnar
En hvað með Neró?