Ég er holdgervingur framsóknar. Svona verður staðan eftir næstu kosningar.
Stjórnarráðið heljar hátt
heilsar görn með skertan mátt,
hún er alveg upp á gátt,
allir mega fá sér drátt.
Ákveður að setja þetta hér, frekar en í fréttaþráðinn
Framsóknar- er fallinn -prinsinn.
Farinn Samfylkingar til.
Tíminn skemmir glígjuglansinn,
geymum flokkinn bak við þil.
Þetta er jú herbragð hér
hér það önnur saga
Framsóknarmann fá þeir sér
flokk sinn til að laga.
Ljómar upp xT
♪♪ Óli Jó, í myrkri lýsir leið... ♪♪
Æ nei, tók sig upp gömul framsóknarást...
Flótti hrjáir Framsókn enn,
farin vonin, trúin.
Á þingflokksfundum þrasa menn
og því er Dagný flúin.
Fyrsta fyrirsögn Fréttablaðsins í dag:
Klofningi spáð í Framsókn
Kannski Framsókn fáist nú
að falbjóða’á sér klofið?
Margir vilja meta frú
hvort meyjarhaft sé rofið.
Maddömmunnar haft ég held
að hundrað sinnum rifið sé
yljaði sér í íhaldsfeld
undir var svo borið fé
Ýrist framsókn, óttast sí
engu fylgið nemur.
Skýrist himinn, skjögrar þý
skundar, við dé semur.
Þarna er vísað til þess að með vorinu mun hjáleiguþýið þóknast sínum aldna húsbónda á aðalbólinu, sem vant er.
Framsóknar er fallin spýta,
fór hún út með Búss í kíló.
Inn og út um ljórann líta,
langar þeim á ný í bíló.
Okkar ,,besti" virðist á leið út af þingi. Því rifjast upp ummæli (Svavars Gests minnir mig) um þá sendingu sem Kristinn H var fyrir Framsókn.
Kristinn H var kross að fá,
krataherinn fagnar,
fullhefnt ekki fyrr en þá,
fyrir Ólaf Ragnar.
Fækkar enn hjá Framsókn nú,
flýja menn í hópum.
Hjálmar senn er sviptur trú,
sem er kennd af glópum.
Guðni sagði víst af vana:
Vá víst þykir hér,
þar sem tveir eða færri flana
framsóknarflokkur er.
Framsókn skartar fögrum hóp
fljótt mun þjóðin sjá það
Stela ei né stunda skróp
stoltir lausir við allt dóp.
Ráðherrar falla og fylgið þeim með,
flokkinn hann bráðvantar sykur.
Þeir liggja í valnum sem léttvægust peð
á lofti sjást talsverðar blikur.
Framsókn, framsókn, framsókn, framsókn
Flest má með fé kaupa
Framsókn, framsókn, framsókn, framsókn
Atkvæðin samt frá hlaupa
Kvæði þetta er ort í samhendum hætti
Það er ekki nóg að yrkja það þannig, það þarf þá að skrifa það þannig inn líka.
Það er ekki nóg að yrkja það þannig, það þarf þá að skrifa það þannig inn líka.
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri
Það er rétt.
Það er ekki nóg að yrkja það þannig, það þarf þá að skrifa það þannig inn líka.
Einelti, einelti!