Eru nokkrar meinsemdir eða vandamál í dag? Starir þegjandi út í loftið
Hrökklast afturábak og hrasar við
Ber að skilja þetta sem svo að yfirvofandi sumarlokun teljist hvorki til vandamála nje meinsemda ? Klórar sjer í höfðinu
Ég myndi flokka hana sem hvort tveggja.
Ég sé engin vandamál þar sem við höfum bæði Skabbalút og Kaffi Blút í sumar. xT
Það er samt ekki það sama.
Andvarpar
Ég þakka þó þeim hetjum sem hafa lagt á sig að búa til þessi varasvæði.
Er það meinsemd og/eða vandamál að Baggalútssíðan sé enn uppi?
Af hverju eru baedi ''lygilega vinsaelir leikir'' og ''leikir og daegradvol'', thegar thad tharf bara einn sandkassa? Mer synist engin serstok adgreining vera milli thessara svaeda, er ekki bara best ad sameina thetta?
Svo maetti alveg gera kvedskapnum haerra undir hofdi og gera ser kvedskaparmal.
Ég ætlaði að skrá þráð í anganvísun og svo virtist sem það hefði gerst... en svo sé ég ekki þráðinn neins staðar í flýtivali...
Hvernig afskráir maður anganvísanir?
Vér erum sammála seinasta ræðumanni.
Ég mótmæli síðustu tveimur ræðumönnum. Ég heimta að fá að vita ekki nokkurn skapaðan hlut um hvernig eigi að afskrá anganvísanir og óska ég engum þvílíkri bölvun að fá vitneskju um það.
Ég er ósammála seinasta ræðumanni sem er ósammála ræðumönnunum tveim á undan honum - þeim er ég sammála. Ég þrái að fá vitneskju um hvernig konur (og líka menn ef aðferðin er hin sama og hjá konum) afskrá anganvísanir.
Nákvæmlega. Ég er alltaf með einhver ömurlegheit í uppáhaldi. Ég veit ekkert hver þessi Beta hikkoríhneta er og hef aldrei haft áhuga á að vita það.
Svo virðist sem eigi sje unnt að breyta undirskrift sinni. Vjer reyndum það en eigi virðist sem það hafi haft nein áhrif.
Nú tókst oss að laga þetta, svo virðist sem mesti leyfilegi fjöldi lína í undirskrift hafi verið minnkaður í 5.
Mér sýnist gæta verulegrar ónákvæmni í viðbót þeirri er þú hefur gert á undirskrift þinni.Hrökklast hlægjandi aftur á bak og hrasar ekki við