Hann er líka síðan vagnstjórarnir voru allir karlkyns.
Má þá eiga samræði við vagnstýru núna á meðan vagninn er á ferð?
Útúrsnúningurinn snýst um að möguleikinn er nú fyrir hendi. Karlar geta jú bara eitt í einu, er það ekki?
Þeir þurfa bara að geta eitt í einu. Konur eru til að gera allt hitt á meðan.
Mikið er ég fegið að vera hvorugkyns og þarf þar af leiðandi ekki að hafa áhyggjur af því hvað ég get gert mikið eða lítið í einu
Vjer söknum Vísindaakademíu Baggalúts. Menning og menntir felur e.t.v. í sjer vísindi en vjer leggjum samt hjer með formlega til að nafni svæðisins verði breytt í Menning, menntir og vísindi.
Nú hefur einhver órangútinn ýtt við kökuboxinu og velt því á hliðina því mér er ómögulegt að sjá hvaða þræðir teljast lesnir og hverjir ekki. Brestur í óstöðvandi grát
Hafa aðrir en vér lent í því að skráningarkerfið verkar eigi sem skyldi? Vér lendum iðulega í því að þurfa að skrá oss tvisvar ef vel á að vera.
Ég þarf reglulega að eyða kökum til að komast inn. (Ekki mjög oft samt, en reglulega.)
Þetta hefur gerst 3-4 sinnum hjá oss eftir að aftur var opnað í ágústlok. Langt er síðan það gerðist síðast.
Vandamál þetta virðist hins vegar vera viðvarandi hjá oss. Getið þér leiðbeint oss um hvernig skuli ráða niðurlögum þess?
Hjá mér virkar það alltaf strax eftir kökueyðingu (þegar það kemur upp).
Ég þarf að eyða öllum mínum smákökum í u.þ.b. annað hvert skipti sem ég reyni að skrá mig inn.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer rákumst rjett í þessu á villu í Gestapóinu: Yðar innlegg (eða Þín innlegg) skilar eigi lista yfir nýjustu innlegg vor heldur lista yfir nýjustu innlegg á að því er virðist sama hátt og HVAÐ ER NÝTT?.
Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer rákumst rjett í þessu á villu í Gestapóinu: Yðar innlegg (eða Þín innlegg) skilar eigi lista yfir nýjustu innlegg vor heldur lista yfir nýjustu innlegg á að því er virðist sama hátt og HVAÐ ER NÝTT?.
Það hefur verið þannig alla tíð hjá mér. Ég hef getað bjargað mér með að nota "Þín innlegg" í stað "Hvað er nýtt" þegar hið síðanefnda tæmist óvænt.
Ég hef nýlega tekið eftir því að menn eru að hætta hér í einhverri helvítis fýlu.
Það eru konur aftur ekki að því er virðist. Gerumst bara öll konur!!