Guð minn almáttugur (nei ekki þú)... þetta lag getur gert mann geðveikan... var með það á heilanum í þrjár vikur samfellt... Fær lagið á heilann... NEEEEEIIIIIII
Færir Skabba inn í bólstrað herbergi hvar hann getur sungið uppáhalds lagið sitt
Slíkt verður bara læknað með svokölluðu antidóti eða andeitri.
Hér er mín tillaga að andeitri:
...Það er engin leið að hætta... Það er engin leið að hætta að syngja svona. Popplag í G dúr.
Ef til vill er andeitrið í hættulegri kantinum en vera má að þetta balanserist út einhvern veginn.
Mér skilst að hér sé bent á það sem betur mætti fara í tækniatriðum á Gestapó, ég vil þá hér með benda á það að þegar tengillinn á spjallið í niðurskipan (þar sem stendur að ég þurfi að skrifa 10 sinnum á spjallið) er eitthvað bilaður og vísar á síðu sem er ekki til.
Ég þakka gott hljóð.
Þetta er allt saman satt og rétt hjá þér.
Það sem hét spjall.php fyrir sumarfrí heitir núna index.php í nýja Gestapóinu, þannig að ekki er skrýtið að hlekkurinn virki ekki. Hann á að fara yfir á aðalsíðu Gestapó, það er að segja þessa hér.
Ég vil benda á meinsemd. Við félagsrit hafði verið gerð 31 athugasemd, en í stað þess að hafa orðið athugasemd í eintölu, var það í fleirtölu, athugsemdir!
Hvílík firra!
Vjer höfum orðið þess varir að stundum bætir spjallborðið sjálfkrafa eyðum inn í URL í athugasemdum við fjelagsrit, sbr. athugasemd vora við eftirfarandi fjelagsrit:
http://www.baggalutur.is/gestapo/profile.php?mode=viewprofile&u=1085&n=4993
Vjer minnumst þess að vandamál þetta var um tíma til staðar á gamla gestapóinu en var síðan lagað.
Mér finnst ég vera sá eini sem drekkur eðlilega.
Þambar kóbaltbláann drykk
xT
Ég drekk frekar óeðlilega.
Sullar út um allt
Eitt vekur athygli mína. Af hverju er konum leyft að skrifa hér?
Við kvenkyns verurnar erum þeim gáfum gæddar að geta gert tvennt í einu. Þess vegna er bæði hægt að nota okkur til fjölgunar og til þess að eiga við okkur gáfulegar samræður.
Þetta kallast samræðusamræði.
Til hamingju Gimlé. Ég var einmitt að velta því fyrir mér hversu langt yrði þar til einhver segði eitthvað á þessa leið - og þér tókst það svo til samstundis! Veitir Gimlé orðu