Ég hef alltaf verið að velta því fyrir mér hvað vanti hérna á hinn nýja Baggalút. Nú er ég búinn að komast að því.
Það vantar Vjer Ánetjaðir - svæði þar sem nýliðar geta komið og kynnt sig. Hvar eiga menn eins og ég að halda sig þegar búið er að taka burt það svæði þar sem maður getur komið reglulega og aflí...- heilsað uppá nýja gestapóa. Þetta er stór galli.
Ýtir á play á dósahlátrinum og fagnaðarópunum Þar hittirðu naglann á höfuðið. Annars veður þetta bara uppi og verður að meinsemdum og vandamálum á Gestapó. Starir þegjandi út í loftið
Með fullri virðingu til méstar Vladímír Fuckov, þá er Baggalútía að mínu mati alls ekki útópía. Útópía getur aldrei verið til á veraldarvefnum nema í tölvuleik eða einhverju svipuðu. Baggalútía verður sem sagt að stofna tölvuleik til að geta búið til Útópíu. Þessari hugmynd er ég hlynntur og því samdi ég þráð um að hægt væri að gera við Baggalútíu alveg eins og gert var við EVE tölvuleikinn - jafnvel sameina Baggalútíu EVE leiknum og þá er hægt að nota Baggalútíu sem plánetu handa geimskipum úr EVE tölvuleiknum og öðrum internet leikjum til eldsneytisendurnýjunar og könnunar landssvæðis og ýmissra annara afnota, jafnvel framleiðslu, sölu, dreifingu og rannsóknum á kóbalti.
Þú ert bara OmegaOne í kjól.
Þú segir nokkuð Rósi, ef rétt reynist þá hefur hann ekki farið að mínum ráðum hér um árið
Tryptisol og trilafon
tofranil og ensidon
ef þú étur virðist von
vaknaðu OmegaOne
Þú ert bara OmegaOne í kjól.
Þú ert væntanlega gamall gestapói í nýjum þjóðbúningi...
Mikið er ánægjulegt að sjá mig hrynja niður listann. Það var orðið kalt á toppnum.
Það er afar undarlegt að sjá konunginn fyrir neðan sig á listanum. Afar undarlegt. Mætti jafnvel túlka það sem vandamál, ef ekki meinsemd, á nútíma Gestapói.
Nú er ég ekki alveg að skilja, hvaða lista eru þið að tala um?
Ég fæ bara heimavarnarlistann í stafrófsröð eða eitthvað álíka óspennandi.
Fékk sér nýjan búning í sumar
Já ég spyr líka...hvaða lista?
Nú er ég ekki alveg að skilja, hvaða lista eru þið að tala um?
Ég fæ bara heimavarnarlistann í stafrófsröð eða eitthvað álíka óspennandi.
Vjer endurtökum hjer með formlega það sem Hljegestur sagði á síðustu síðu:
http://baggalutur.is/gestapo/memberlist.php?mode=posts&order=DESC
Ég er efstur af þeim sem eiga engin félagsrit.
Ljómar upp
Mér líst ekki á mína staðsetningu á þessum lista, er að bæta úr því hröðum höndum (eða fingrum....)
Jæja nú líður mér langtum betur Gefur frá sér vellíðunarstunu
Til Ísdrottningarinnar
Við erum að reyna að draga okkur mörk um hvað má skrifa um og hvað ekki og hverjar óskráðu reglurnar eru á svona vefsíðu því það hefur verið mikil umræða um það á vefsíðunni undanfarin 5 ár.
Hún var bara ekki eins sýnileg þá og nú. Ég byrjaði sjálfur fyrir rúmum 3 árum sem þýðir að umræðan um óskráðar reglur á Baggalútnum hefur verið til fyrir þann tíma.
Mikið er ánægjulegt að sjá mig hrynja niður listann. Það var orðið kalt á toppnum.
Það er afar undarlegt að sjá konunginn fyrir neðan sig á listanum. Afar undarlegt. Mætti jafnvel túlka það sem vandamál, ef ekki meinsemd, á nútíma Gestapói.
Já mér finnst ég vera einhvernvegin allt of ofarlega.
Hvernig getur kóngur farið að því að vera fyrir neðann sig? Hmmmmmmmm. Ef ég er þessi kóngur, þá er skynsamlegra fyrir mig að ég sé opinn svo að ég þurfi ekki að vera fyrir neðann sjálfann mig. Annars myndi ég þjást af skelfilega lélegri sjálfsímynd. Hið albesta við að hafa úlf sem konung, er að hann þarf ekki að krýna því að kóróna kemst ekk fyrir á höfðinu á honum. Velsissprota getur hann ekki notað því að hann er með loppur, og í hefðbundnum kóngafötum getur hann ekki verið í því hann er í feld. Allt er þetta ókostur að kveldi til við fullt tungl. En að degi til breytist þetta allt saman að sjálfsögðu.
Baggalútía er fremur nostalgíst fyrirbrygði
Reitur til að koma sér og örðum á æðra stig , hvort sem menn gera það með lyfjum eða íslensku máli og hana nú...
♪Á íslendsku má alltaf finna svar...♪
Ég veit það ekki, hef aldrei þorað að spyrja hann.
?Á íslendsku má alltaf finna svar...?
? og orða þetta og hitt sem er og var
og hún á orð sem geyma gleði og sorg,
um gamalt líf og nýtt í sveit og borg. ?
? Á vörum okkar verður tungan þjál
þar vex og grær og dafnar okkar mál.
Að gæta hennar gildir hér og nú
það gerir enginn nema ég og þú. ?
Hvar er sæta stelpan nú ?Klórar sér í höfðinu