Skerðingarnar skeða brátt
er skuldir þarf að greiða.
Líklega þá lifum smátt
því litlu má þá eyða.
Þarana voru þessir menn
þegar upp var tekið.
Sitja þeir á þingi enn
þótt það hafi lekið.
Lekið hafði æði lengi
lljótt var það að sjá.
Fúnð sprek og rotið rengi,
í ruslið henti þa.
Þá var öldin önnur hér
áður fyrr var gaman,
litlu börnin léku sér
og léku allir saman,
Saman fóru í ferðalag
Fúsi og Lína,
Áttu saman dýrðar dag
Dabbi Jóns og Stína,
Stína þótti stórgott blað.
Stýrði því Kormákur.
Guðbergur kom þar einnig að.
Ólmur er hans skáldfákur.
Skáldafákar finnast hér
þótt fækkað haf'í stóði.
Komi þeir þeim bera ber
að bæta hér við ljóði.
Ljóði einu læði þér
legg í byggðir stafa
Bagga mína bindi hér
brott frá öllum vafa
Vafalaust er vafið fast um vafamálin
efasemdum ýmiss konar,
almættisins versta sonar.
Syni á hann trausta yvo
tæpast eignast fleiri ,
Gaman að gera do og do
drundi karlinn Geiri,
Mér ágætlega að yrkja ferst
svo einhverjir þess njóti
Því fljóti ljóða fram með berst
þó feikn af leir og grjóti
Úr grjótinu má gera fjöll
garða og margt fleira.
En hér á þræði ættum öll
að yrkja ljóð um Geira.
Geiri er allur en gladdi mjög
þá Gullinnfingur átti
Hann litlu bulli lagði að drög
og lét af öllu þrátti
Þrættukóngur oft ég er
opnast þá minn kjaftur.
Reynist það svo rétt hjá mér
ræði ég það aftur.
Afturkreisting ætti að nefna
ávallt þann er hampar sér
Sjálfshólið fljótt sín mun hefna
Sannleika margvís halur tér
Tér oss Bjarni Benediktsson
banka Íslands skuli selja.
Bjögga og Ólaf Ólafs, Don,
ætti hann til kaups að velja.
Velja hafna val mitt er
verður erfitt stundum.
Upp og niður allt er hér
eins og gól í hundum.