Kárnar geð er kjafturinn
kemur mér í vanda.
Illa reynist rafturinn
og réttast hann að banda.
Bandaríkjabílarnir
bensín þurfa forða
Fílsbeinsstrandarfílarnir
fitna ef þeir borða.
Borðarnir á boðungunum
bera vott um sæmd.
Værðin á hvítvoðungunum
víst skal hátt hér dæmd.
Dæmdir eru ævilangt
okkar kynslóð næsta
Gróðabraskið gerði rangt
og gerði okkur æsta.
Æsandi er Ingunn Mjöll
íturvaxin, stærri en tröll.
Auk þess hefur auðardöll
átján sentímetra ...
... svo ég letra.
Letra á með leyniskrift
leyndarmálin nánu.
Ýmsu verður annars rift
sem endað gæti í sánu.
Sánuböð eru mögnuð mjög
mörg það dæminn sanna.
Í hitamóðu var Ranka rög
rjóðrið sitt að kanna.
Kann að vera kæri minn,
kannski er þetta málið;
kannski hefur hnífurinn
hlutað sundur stálið.
Stálið hartt er glópa gull
gamall maður kveður.
Annar segir bölvað bull
bjart er öfir eður: ( Austurlensk flámælska:)
Yður er frelsari fæddur
friður á jörðini hefst
Fallega karlinn er klæddur
kominn á toppinn já efst.
Efst á toppnum er víst kalt
og ýmsa langar niður.
En hjá Munda flest er falt
er far um þangað biður.
Biðja menn um betri kjör
svo borgist skuldir niður
Sumir vilja minka mör
og má það vel hjá yður.
Yður hef ég alloft þérað
einkanlega í veislum.
Bjóddu mér nú heim í hérað,
hesta fljótt þá beislum.
Beisla ekki hesta hér
heldur ek ég bílum
Blíðan hér sú besta er
en bykkjurnar með dílum.
Dílum nú við dánumanninn Pétur,
um ferðalag til Flórída
uns fram er liðinn vetur.
Vetrarhörkuhríðarbyl
hentar ekki núna.
Líkar sól og sumaryl
og sættist nú við frúna.
Frúna sína Freyju
Finnur tók á löpp.
Aðra yngri meyju
einnig tók (á Klöpp).
Klöppum fyri karli þeim
sem kom með Ákavítið
Berjumst fyrir betri heim
svo búsið kosti lítið.