Gæinn ungri meyju mætti
í miðbænum umm nótt.
Hann á sig fjórða bjórnum bætti
bjánanum var ei rótt.
Ró og friður rikir; öll er reiði farin.
Áður sál mín sundurbarin
sárþjáðist öll blá og marin.
Marinn þorsk á færið fjekk
furðulegur hann var á svipin,
niður af honun gusan gekk
grænmórauð á næstu skipin .
Skipið upp á skerið gekk – er brotið
frá skut að stefni – laskað, týnt og sokkið.
Íslandsmannsins örendi er þrotið.
Eftir lifir minningin um FOKKIÐ.
Fokkið er í flestöll skjól við Fálkagötu
flutt, því bann á bari fellur
bráðum, og það harma mellur.
Mellur eru þarfa þing
þegar viltu ríða.
Þingfesta og koma í kring
karlar þjáðir bíða.
bíða má ég bísna þá
bót er ´fáum gefin
líður frá mér löngun smá
líkist þránni efinn
Efinn þjakar aldrei mig
ekki kann að lesa.
Skeiðin eru skemmtilig
er skelli ég á Blesa.
Blesi fymur skellti á skeið
skjótur með reystan makka.
Flaug sem elding langa leið,
ljónstyggur heim að Bakka.
Bakkavararvesenið
víða festi rætur.
Mammonspúkamálalið
í minni pokann lætur.
Lætur mikið illa hún Imba
illvíg líka skjátan er.
Lemur bæði Sigga og Simba
situr úti oftast ber.
Ber er hver að baki nema
bróður eigi sér.
Halltu fast í þetta þema
það vill bjarga mér.
Ég er flinkur, ég er knár.
Ég er allra bestur.
Ég er foli, ég er klár.
Ég er stoltur hestur.
Mér til lappa liggur Pó
lati vatnahestur
Ég mér vasa Tarza tró
tölti hann í vestur
vestur í virginíu
víst eru flestir hestar
og merarnar mestar og bestar
betri en í búlgaríu
Búlagarar báðu um síma
og Björgólfur óðar stökk til.
Hann eyddi þar talsverðum tíma
og taldi öll viðtalsbil.
Bilun er að bíta kál
og borða lítið annað
bara svo að magamál
minna verði skannað.
Hestur minn sem hottið þarf
hefur núna stannað.
Ekki fær hann annað starf
þó allt ég hafi skannað. [Keðjubrot, þessi vísa hefði átt að hefjast á "skannað" en ekki enda á því - kv.BP]