Gryllur hylli, höll er öll
Höllu brellin stelling
Fyllast vill nú falleg, snöll.
Frillan valla er hrelling.
Hrellings árans bullan Björn
bagsar áfram veginn,.
hanns í maga gaular görn
grimmt er karlinn sleginn.
Sleginn, hæddur, flæmdur, flengdur
festur snöru, tvisvar hengdur,
fleginn, skotinn, fastur strengdur,
flisjaður að lokum sprengdur.
Sprengurinn er spælandi
en spaug á klói fælandi.
Strengurinn er stælandi
en strákurinn er ælandi.
Ælandi, þvælandi, tælandi á Tælandi
telpurnar það er brýnt.
Hælandi þrælum ,en hælsæri er spælandi
hælnum af skó gat týnt.
Týnt er allt, sem áttum vér,
ekkert snjallt er ráðið.
Lánið valt & lúið er,
lífsins kalt er háðið.
Háðið svart er svalt og kalt
og soldið smart á tíðum.
En hrósið skart er skakkt og rakt
og skemmist hart í smíðum.
Ætlaði að hafa þennan botn, en ofstuðlun varð þess valdandi að ekki varð úr...
En hrósið bjart er hallt og þvalt
og heldur hart í smíðum.
Smíðum gríðum smekklegt níð
smjaðrið prýðum tíðum.
Kvíiðinn hýðum ljóða lýð
löngum hnýðum strýðum.
Stríðum fólki förum vítt
finnum veika bletti
heimsins sárum sinnum lítt
svíkjum grætum smetti.
Strýðum rennur Straumgylsá,
steinar á flúðum braka,.
yfir merin göslar grá
grindhoruð til baka.
Smettisskrudda skelfing er
í skyndikynnum maka.
Ef að hann á flakkið fer
þá finnst ey leið til baka.
Ég held ég sé að verða hálflasinn... veit bara ekki alveg hvað hrjáir mig mest :
Bakflæði & bronkítis,
berklar, niðurgangur,
skarlatssótt & sýfilis;
sjúklegt hugarangur.
hugarangur ægilegt
er að hrekkja Snata
hér allt verður hlægilegt
er hann fær aftur bata.
Það var og. Lát þér batna ´( Svona er heilsa mín .)
-----------------------------------------------
Hugarangurs hugsýki
hræðsluflogagangur,
kverkagólga í lax líki
leti og ætíð svangur.
------------------------------------
Bata fínan Snati fær ...ath.stuðlar í lágkveðum
fyrr en okkur varir.
Honum yfir skýna skær
skrautkerti og,hjarir!
Þakka þér innilega hugulsemina, Lappi minn – en innleggið þitt kom heldur seint (& er auk þess ekki fullkomlega gilt) . . .
Bata fæ ég engan enn,
elnar stöðugt sóttin.
Napur dauðinn nálgast senn,
nagar úr mér þróttinn.
[i]
Þróttinn færðu tími til
taktu inn pillur fjórar.
Magnyltöflur beggja bil
en bara meðal stórar!
Stórar þrautir hef ég haft
& harma til að bera,
en gambrasopinn gefur kraft,
svo góður þykist vera.
vera máttu mætur þegn
og míga út í horni
þegar innan þrýtur regn
þornar sá eðalborni.