Ofankoman einhver var rétt eftir jólin.
Á gulann snjóinn glampar sólin,
gat víst einhver berað tólin.
Tólin ljótu Bjarni berar
bjarta um sumarnótt.
Stunur Bjarna,Hildur hlerar
henni var ekki rótt.
Rótt er ey um áramót
allir bombur sprengja.
Fara svo á mannamót
og markverð heiti strengja.
Strengja heitin huglausir
hlutlaus verður Lappi.
Ennþá gaula lag lausir
lognast sálar tappi,
Bull og þvæla!
Gleðilegt nýtt ár, Þakka hið liðna!
Tappatog og tannastang
tómir magar fyllast.
Taumlaus tinar gleði vang
tíðin brátt mun stillast.
Strengja skaltu stuðlaheit
og stilla þeim upp rétt.
Þriðja kveða það best veit
að þiggja klappið nett.
Nettan þuklar barmin Björn
á Björgu vinnu konu.
Í rúmi góðu tekur törn
til að geta sonu.
Lagfæringartillaga á fyrstu línu Lappa:
„Nettan þuklar barminn Björn...“
Sonu mína sett ég hef
og sál að veði.
Líkt og engill síðan sef
í sælli gleði.
Gleiðin ríkir gerskt um lönd
gaman er að lifa:
Mér halda engin æseifbönd
og ekkert undir skrifa!
Skrifað hef ég skakkt og rangt
á skítug blöð með loðnum penna
tóm er buddan, barnið svangt
Björgólfum er um að kenna.
Kenna vil ég engum um
ölvun mína
þó flaskan hafi fokking sum
fengið oní vömb að skína.
Skína hnettir himni á
heiðskírt úti núna
Hátt í vestri Venus sá
og vetrarbrautar brúna
Brúna hef ég lorta litið
laugarbakka við.
Höfðu margir helling skitið,
held það séuð þið.
Þið sem keyptuð kúptan skjá
kristals- hafið -tæra
samvisku í vorri vá;
voluð hinna æra.
þið í drullu vilpu vaðið
vesæl grísa skinn.
Lokum sett í brennheitt baðið
og beint á diskinn minn .
--------------------------------------
Æra oss með háum hljóðum
horngrítis flaugarnar.
Upp í eyrun töppum tróðum
og trítlum í laugarnar,.
Laugarnar við leggjum í
er lokkar okkur sólin.
Þeytumst úr og þá hún hlý
af þokka kokkar tólin.
Toledo, Cádiz, Costa Blanca,
Cartagena, Badajoz,
Santander og Salamanca
Sevilla og Blönduós.
Blönduós er býsna spes,
þar búa engir hrafnar.
Langt er út á Langanes
og langt til Raufarhafnar!
(Jeminneinasti…!)