Leki tunnan leita skal
líkast til í Borgarfirði
að botninum, sem bræðraval
á Bakka taldi mikils virði.
Lekandinn leynir sér ekki -
minn lífsvökvi' er hlaupinn í kekki.
Ég framvegis tel
að það farnist mér vel
að sof' aðeins hjá þeim, sem ég þekki.
Virði hvers er viðarglóð,
sem vakir langar nætur?
Virði hvers er vannært blóð,
sem vermir hjartarætur?
Virði hvers er vesalt ljóð,
sem vonir kvikna lætur?
Virði hvers er vansæl þjóð,
sem votum augum grætur?
Gráta auðmenn auðmissinn
öllu hafa tapað
Gróðnn var víst gestrisinn
en gengið er nú hrapað.
Hrapar stjarna himni á
himneskt á að líta
á jörðu titrar teinrétt strá
tíkin bún'að skíta
Skíta fyrst og skeina vel
skola síðan hendur.
Rétta þessa röð ég tel
reyndar er ég kenndur.
Kennir okkur kúnstir góðar
kappinn Vímus meikar sans
(líkast yrðum ætíð sóðar
ef ekki nyti visku hans)
Hann er góður hann er klár.
hann er okkar maður.
Hann er líka fljótur frár
fallegur og glaður.
glaður ég vil fara flest
fara á henni víða
graður ég vil bara best
bara flenni ríða
Hmmm.
Ríður út umm víðan völl
Venni hestamaður,
líka býr í hárri höll
heldur betur graður.
Graðir hérna gerast menn
er gleðivísur lesa.
Kvennpeningur kemur senn
og kætir lúsablesa.
Lúsablesar ljúga oft.
Lífs er gangur (n)aumur.
Mér er spurn: Er Microsoft
martröð eða draumur ?
Drauma maður marga á
(milljón eða fleiri)
en fanginn helst af frygðarþrá:
Að flengdi mig með keyri
strípibúllugæinn Geiri
Geiri var dugnaðar drengur
dreyninn og hagur til verka.
Núna víst garpurinn gengur
gapandi með Egil sterka.
Sterkur bjór er bragðgóður
baukana hef drukkið.
Kókoshnetukjarrgróður
kolruglast við sukkið.Klórar sér í höfðinu
Greyið mitt þegi þú
þegar hún talar.
Þetta víst segir sú
sú sem hér galar.
Galinn ertu, greyið mitt
og gaga - vil ég trúa -
ef gott finnst þér að gera hitt
i gröf með kistubúa.
Hvernig í andskotanum frétti Hlebbi að ég væri fluttur í Kistuna[s]Blótar herfilega og rífur hár sitt[/s]
Kistubúar báðir hér
bæði ég og Halli.
Lífið þar víst er og er
endar svo með balli.