Ég ligg í sófanum með köttinn á bringunni og Sunnudagsmorgunn í bakgrunninum.
Ligg uppí rúmi og bíð eftir að fara á næturvakt.
Hlusta á útvarpið, eða það sem eftir er af því.
Liggja á meltunni, ég held að ég hafi gleymt mér í gleypiganginum.
Gera mér grillsamloku... gráðaostur og tómatar eru æði saman...
Borða sjúklega góða mandarínu. Gefur frá sér vellíðunarstunu
Finna mér nennu til að fara að lesa fyrir próf... hún bara finnst ekki.
Reyna að átta mig á umhverfi og ná áttum.
Maddaman snýtir sér og horfir með öðru auga á þennan fína orðbragðsþátt sem hún fann á leigunni.
Ég er að bíða eftir því að klukkan verði 12. Skrúfar niður í garnagaulinu.
Íhuga hvort ég nenni þessu lengur
Hugsa um hvort Grágrímur ætli ekki að koma með 40 innlegg áður en hann gefst upp.
Ég er að læra utanað nokkrar smásögur á útlensku. Hristir hausinn svo glamrar í