Ég er undirbúinn, en vonandi verð ég ekki búinn að týna þessu eftir allan þennan biðtíma.
Þú týnir nú varla tölvunni þinni þangað tilHrökklast aftur á bak og hrasar við
Hún bilast kannski? Glottir eins og fífl
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri Kannski, ef hún líkist eigandanum þá er nú allnokkur hætta á því.
Hvur þremillinn hefur gerst hér! Klórar sér í höfðinu, til blóðs meira að segja
Rosalega eru menn orðnir róttækir í breytingunum. Ég var ekki viss hvort ég væri á Gestapó eða hxxx.is.
Ef það er ekki alvarlegt, hvað er það þá?
Kannski er bara of langt síðan ég lét sjá mig...
Ljómar upp
Hvar hafið þjer eiginlega verið ?
Hrökklast afturábak og hrasar við...
Var yður kannski rænt af óvinum ríkisins ?
...um yfirheyrslutæki
Það er nú það... Ég er í það minnsta búinn að vera á landinu, svo mikið er víst.
Annars hef ég verið að rækta hug minn og líkama, tilbúinn að takast á við þá slítandi vinnu sem mér bíður hér.
Hallar sér aftur og biður um drykk
Opnar barinn og hefur drykkjaframleiðslu
Gjörðu svo vel.
sest við barinn Ég verð nú að biðja Dularfulla manninn eilítillar afsökunar...vonandi tekur hún þessu ekki of illa.
Býr til ofurkokteil með því blanda dassi af öllu sem til er í kút
Má bjóða herranum smakk?
Já takk!
drekkur af fagurbláum drykk teygir úr fótunum
Þetta er ljúfa lífið...
Ég tilkynni hér með um forföll á hagyrðingamótinu. Að hluta til skrifast það á tímaleysi hjá mér, að hluta til skrifast það á óspennandi yrkisefni og öðrum þræði skrifast það á skáldinnblæstri síðustu daga(sjá þrjú síðustu félagsrit mín).
Bestu kveðjur
Já það var mikið að þú afsakaðir þessi móðgandi ummæli þínxT
Er miðnæturfrostið eitthvað snemma á freðinni eða er þessi frábæra internettenging mín endanlega farin?
Sennilega vantar þig bara aftur í glasið. Bætir í glas Mín sjálfs
Miðnæturfrostið er liðin tíð en hins vegar er klukkan bandvitlaus.
Hvað þá! Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Er ekkert miðnæturfrost hér á þessu nýja Gestapói!? fær aðsif og neyðist til að fá sér aftur í glasið
Hvað ert þú eiginlega búinn að vera lengi í burtu? Klórar sér í höfðinu
Sennilega vantar þig bara aftur í glasið. Bætir í glas Mín sjálfs
Svona formsins vegna og til að fyrirbyggja frekari misskilning ætla ég að kenna þér að beygja nafnið mitt, það hefur vafist fyrir nokkrum, þ.e.a.s. nema þú hafir verið að tala um gamla frænda minn, hann Mín sjálfs, blessuð sé minning hans.
En hér kemur það þá og þú munt gera vel að muna það;
(hér er) Ég sjálfur
(um) Ég sjálfur
(frá) Ég sjálfur
(til) Ég sjálfur
Skilið. Það er hins vegar annar þráður þar sem verið er að kenna beygjingar á nöfnum Gestapóa, og ég þorði ekki annað en að hafa vaðið fyrir ofan mig. Glottir eins og fífl
Ég er undirbúinn, en vonandi verð ég ekki búinn að týna þessu eftir allan þennan biðtíma.
Þú verður nú varla í vandræðum þó þú týnir nokkrum vísum, þú býrð bara til nýjar.