Stormur blæs um bæjar þak
bát og sjómann hraustan.
Flámæleð er fyrirtak
fékk það ferer austan.
Afsakið... gleymdi orði ;) [ekkert að afsaka.BP]
Já, hefur ekkert hlotist af
hagmælgi gesta?
Drottinn tók og drottinn gaf
Danmerkur til, flesta.
flesta ég þó upptil lít
og hann gerað fífli
andskotinn með úldinn skít
á þér kjaftinn stífli
bíð þeim í glas sem veit hvern ég er að stela frá...
Stífli ég þinn stóra munn
Stúrinn getur muldrað
Þykir mér nú úrlausn þunn
þú skulir geta tuldrað
Ákaflega illa ort... ég veit...
Tuldraði við mána mann
"Mikið ertu bjartur."
"En þú ert svín!" hátt hló-ði hann
"og heimskur fylliraftur!"
Fylliraftur fór á stjá
frekar drýldinn í framan
Hafði ekki hemil sér á
og hafði af því gaman.
ÉG er líklegast versta ljóðskáld sem Baggalútur hefur birt ljóð eftir!
gaman oft er grátt
gleði hverfist brátt
fagurt mælist flátt
fjandinn býður sátt
hafa skulum hátt
hér í alla nátt
kotið verður kátt
kveð ég ýsudrátt
orti Hjálmar ár og síð
ekki gerðist tíðin blíð
enda fengu ýmsir níð
orða þoldu beitta hríð
hríð er fáum mjög um geð
eymd hún eykur víða
heldur kysi ég blómleg beð
en þess er langt að bíða
bíða má en bráðum sól
baðar ísalöndin
hlýna þá mun heims um ból
hlána klakaböndin
klakaböndin kalla á
kuldaúlpu hvíta
það mun okkur forða frá
frosnum ákavíta
Rétt hlewagastiR, þú ert snillingur, fáðu þér í glas hellir ákavíti í krús ekkert minna fyrir snillinga.
Er ég blindur eða vill Koffortsfiskur ekki nota stuðla og höfuðstafi
ákavítisveigin góð
vætir staupið fína
bunar áfram bokkuslóð
beint í sálu mína
Sálu vorri vætir í
vítis sterka plata
rekkju minni rís úr því
og ráfa um án fata
Starir þegjandi út í loftið
Í náttúrunni nú ég hrýt,
nefið þó hún stífli.
Ætíð er ég á þig lít
ertu líkur fífli.
Í tilefni af tilvitnunum í Bólu-Hjálmar.
fífli gimbrin greip þá á
girntist hann að bíta
gulu blómin borða má
bryðja, melta, skíta
skíta klepra skafa burt
úr skálda eyra mínu
ég hef löngum lagsins þurft
að leggja skálda línu
línuveiðar líka mér
laxa vil ég deyða
út um sveitir fús þó fer
fugla til að meiða