meira drekkum vína veig
vinur hrekkur miðar
seyra hlekkja mjöðinn meig
misjafn smekkur yður
Kárahnjúkum kreppir að
kroppa í þá vélar.
Bomba jörðu breytir í svað
og bergið sundur mélar.
Portúgali puða lætur
Pregilóinn dag'og nætur
þó enginn bjóðist biti ætur
bagsa þeir við stíflu og göng.
Köld eru þeirra kjör og þröng.
Hórur hórast dag og nótt
hafa uppúr því sprungna vör
Rýrðar aur þótt af sé gnótt
afburðaslök eru þeirra kjör
kjörís er, nammi namm
núggat ís, trallala
Emmessís, nammi namm
nart'í rís, lallala
Lalala lúbbídú
lassaskúbbísjúlala
jillibúms jillilú
jjagagú skillerýbúmsa
Farinn á skytterí
Búmsa módel mátti vart
magalenti þó
vélin smáa vatt sér skart
veltist um og dó
búmsa sbr. http://www.flugmodel.is/modelflug/kafli-07/kafli-7-2.html
dó sá drengur laus við ráð
datt ei neitt í hugann
þoldi stríðni, hæðni, háð
henni tókst að bug'ann
Bug´ann vann ei víkingurinn hvítur.
Né varmenni, böðull eða hóra.
Fyrir Opinberun Hannesar fær vítur
Fáir þeir sem á það horfa tóra.
Íslands óhamingju verður allt að vopni. Hrafn Gunnlaugsson komst yfir opinberan fjárstyrk til kvikmyndagerðir og notaði hann til að búa til ruslið Opinberun Hannesar.
tóra eigi mun'ég mjög
mjöð'að teyga lengi
hóra segir "friðils fög
faðma beygi drengi"
Drengi áðan drulla sá
dellu bulli þráðinn á.
Skrabbi fulli skeindi þá
skein þá gullið tönnum frá.
sniðugar og snoðaðar
snilldarvísur fáum
hnellnar saman hnoðaðar
hnikum kvæðum bláum
bláum gæðaberjum ann
í brekkusvæði nokkur fann
sultuvæðast kræfur kann
klístrað fæði í mig rann
angurgapi uppi í tré
appel- vildi –sínu
eins og klaufi ofan hné
uppskar hel og pínu
Pínu Krists og píslargöngu Hans
passar ekk'að ræða um á jólunum.
Á fleygiferð er flest til andskotans,
fínt ef Davíð gæfist upp á rólunum.
Á rólum Davíð riðlast enn
réttur eins og spýta
Heimdellingar, hilmis menn
hamast við að skíta
skíta vilja vinstri menn
vænum sósíal-lorti
rauðir bognir rembast enn
með raun af stefnuskorti
Roðnar af skömm yfir neðanmittiskveðskapnum
Stefnu raunar skorti þann
skítinn mátt' ei nefna
þótt niður ætt'að hemja hann
hann upp vildi stefna
Hörmung er að sjá mig