Á ég öngva sokka?
Andskotans!
Það er lúalegt að fokka með leistana manns!
manns sem fara vill til Frans
fé skal ávallt gefa til.
Því það er helsti draumur hans
að hamast við að leika á spil.
Spilaði úr botni brók
bastarður á Skáni
Skammbyssu í banka skók
skelfilegur bjáni
Bjáni á Grána graður fór
graut í þaut með fant strax
Fauti laut að foldu sljór
í fola bol var Anthrax . . . . . (þ.e.a.s. miltisbrandur)
Anthrax heitir amrísk sveit,
oftast læti er með.
Vandræði hún í villtist feit,
var það nafn ljótt ógeð.
ógeðslega yndisleg
er hún fagra drósin
yrkja vill, þó áfram treg
enn þá skrölti bósinn
Bósa ljósár legg ég nú
ljúflega á hillu.
Sofna skaltu, sofna þú,
sæll frá allri villu.
Villu hennar vibrator
veitti nætur fró
Írafári aligator
annars staðar hló
Hló að mér og hleypti
Hlégesti uppá sig
konan sem ég keypti
frá Kabúl, fyrir mig.
Mig nú langar Smali smár
að smakka kvæðahriðju
Þú ert bæði kaldur klár
kannt vel vísnasmiðju
Vísnasmiðju, vinur minn
varst ei lengi burt frá
því um ræður þráleitin
þrjóska og valbrá
úff.........
Gáfu mér í gluggaskó
gullin forðum sveinar.
Veröldin þá við mér hló.
Voru línur hreinar.
Tróðst um gluggann stekkjastaur;
stífur klæddur smokki.
Hann mun vera höfuðpaur
í hryðjuverkaflokki.
Tregt er fólk í framsókn víst,
frómur maður gaf sér.
Meinar það sem sýnist SÍSt
og segir aldrei af sér.
Trekt er taugakerfið
tek allt nærri mér
blessað glæpagerfið
glaður nú ég sé
of seinn
Sérð í fjarska fagrar lendur
fangar sólin anda
hlaupum yfir hvítar strendur
hlýrra fjarska landa