Sníkti skarfur skuðardvöl
skríkti lausgirt sprundið
mýktist vífsins verönd þvöl
vígt gat loksins pundið
Pundið er af vitinu dýrt
nægir ekkert blaður
Hvernig get ég heiminn skýrt
fátækur námsmaður
Námsmaður í bögubrag
Bulli ætti að vera.
Bæði stuðla og ljóðalag
læra ber að gera.
http://www.heimskringla.net/bragur/bragur/b2.asp
http://rimur.is/?i=73
Gera meira víst ég má:
merja eyra, berj´ á tá,
verjast dreira, vefja þráð.
Herjar veira ef að er gáð.
Annars veit ég svo sem ekki hver er skottulæknir og hver alvöru, nú þegar allt snýr á haus og fólk tekur inn geðlyf til að verjast þunglyndinu. Ekki höfðu forfeður vorir þunglyndislyf, hitaveitu eða raflýst hús og lifðu þeir þó af
gáð var alls á AA fundi
ungfrú Nóra
Gáttuð illa GaGa stundi
gemmér bjóra
úff þarna varð ég að laga höfuðstafinn í línu 2.
roðnar af skömm og brestur í óstöðvandi grát
Bjóra bar í Vísannarkrísu
barðar fjarðarsprundir
Vel veit hvernig býrðu vísu
vitlausa, ef ber undir
Undir súð ég æfur er
ansans úðinn dynur
Beibið flúði burt frá mér...
Mér finnst holl sú hestaskál
hér sem bollan fyllir
fer að bulla, besta mál
berja sull mig tryllir
Tryllir andann tröllið stóra.
Trillukallinn siglir burt.
Davíð magnar drauga fjóra
Djöfsi ræktar nytjajurt.
nytjajurt er njóli, fljótt
nýttu þurran legginn kænn
reykingum í skólast skjótt
sko þú verður bráðum grænn
Grænn grænn grænn
er lítill Grænlendingur.
Grænn grænn grænn
er Anok frændi minn.
minn var ekki máttur smár
mælti skrattinn stoltur flár
smalahundur kirkju klár
kvikur gætti drottins fjár
Fjár til átu fjandarnir
frændum sínum mata
Ekki skrýtið að öreigarnir
auravaldið hata
hata sumir hollan sið
hirða lítt um dyggðir
hunsa bara böll & kvið
bús & gull & frygðir
Frygðir mínar ræður enginn við
enginn við enginn viiiiiððððð
Frygðir mínar ræður enginn við
útum allan bæinn
Bæinn minn svo berauðan
breyti ég brátt í bollu
Gleypa´nn síðan glóðrauðann
og gef svo henni sollu
Dóminn, lóminn,
feitann róminn.
Plötuna á fóninn,
hlustaðu á óminn ... minn.
nei nei Scooter þú misskilur, á þessum þræði hefst næsta vísa á lokaorði síðustu vísu, sbr. "sollu" hjá ruglubulla.
sollu virtist súrna geð
sendi mörgum tóninn
sínar ræður situr með
setur plötu á fóninn