sótið útúr solli valt
sýru-lúta-basi
drakk þar púta pilsner malt
pen sást stúta glasi
Glasi lyfti glaður senn,
gleymist lífsins tregi.
Skála, hrópa hraustir menn,
hratt á föstudegi.
föstudegi fresta enn
fimmtudaginn tækla
gaman verður gumar senn
gleði enn mun pækla
pækil-frysta fæ mér ýsu
feikilegt er salt
matarlistin kemst úr krísu
kjamsa, drekk hér malt
Maltið eykur mör í kvið
myndar undirhökur.
Meltingunni ¨leggur lið¨
lífgar innantökur.
Innantökur allar hata
utan þessa hér:
Hún er innan glyðru gata
gettu hver ‘ún er
Hún er yndi, ekkert skass
eins og demantshringur.
Svífur um á Saga-Class
og selur okkur glingur.
Glingur allar ungfrúr þrá
eitthvað kallar mega fá
ef þeir snjallir snótum ljá
snitti falleg sprundin á
Á þær meyjar menin ná
menn og peyjar gleðjast þá.
Loftsins freyja lumar á:
Lotion, Spray og slæða blá.
Blá er mynd í búra haus
bölvuð syndin gengur laus
risinn dindill dónaraus
drullug lindin fýsna gaus
Gaus úr rassi grútarský
gerðist skassið illt á ný.
Vill fá hass með engu í
ella kassa af maltviskí.
Hér rifjast upp texti um "Betri bíla, yngi konur, eldra vískí og meiri pening". En einhvers staðar segir að maður ætti að fara varlega í að óska sér, óskin gæti nefnilega ræst.
Maltvíski og meyjar yngri.
Meira vil af öllu þessu.
Bíla vil ég betri, þyngri.
Bara til að keyra í klessu.
Klessukeyrði bílinn snót.
Það kvenna er siður er mín trú.
Maltviskí er meina bót
margra eða allra nú.
Núna hefur svefninn sótt
semja fáir kvæði
voru að í alla nótt
erum hér í næði
Næði er á nóttunni.
Nóg er til af víni.
Etum við á óttunni
eyrnakjöt af svíni.
Svíni oft ég slátrað hef
líka nokrum sauðum
hjá stórbrjósta konum oft ég sef
sem oft vinna í gluggum rauðum
rauðum hef ég lömpum legið hjá
og losta svalað
meyjablóm mig migið hafa á
og malað
malað hef ég mikið korn
magnaður andskoti
Kveðið hef hér vísukorn
í Hlíðarendakoti