Mér þykir sem slíkur öndvegisþráður eigi heima hér efst.
Ég held áfram þar sem voff hætti - en vísa hans endaði á hinu ágæta orði 'sokkur':
sokkur góði, sokkur minn
sætur er þinn bifur
finnast á þér fagurleitar rifur
rifur móðu reynast góðar
rofar skýs í bakka
raufum snótir renna móðar
rækta síðan krakka
Krakka marga konan á
komu undir víða.
Svarið ávallt skýrt var "já"
er spurt var : "Viltu tvo bjóra"?
Bjóra tvo í bandi dreg
og bráðum eignast fleiri
Aldrei fann í æsku ég
unaðskenndir meiri.
Meiri vísur, meiri vín
skemmtum okkur betur
Halldór Lax og Hagalín
lifna við í vetur
Vetur nálgast visna blóm
í veðrum allra handa.
Gjarnan þá ég væti góm
með gini eða landa.
Landa í anda sá við sand
sukk og strandadýnur.
Vanda, klandur, vesen, stand,
vodka og mandarínur.
Mandarínur brúkast betur
ef bætt er út í landa
Sætt það hressir sálatetur
og seyðir allan fjanda
Ákvað að skella einni öfugmælavísu hérna inn...
Fjandafæla hleypur hratt
hestur skýtur rótum
Davíðs skapið gerist glatt
að græða á kjarabótum.
Úff, þetta var svefngalsi. Ekki taka þessu alvarlega...
Kjarabóta- býr hver í
landi og líkar vel?
Skattaskylda vinnu ég flý
og sálu mína sel
Svefngalsi klukkan 7? þú hlýtur að vera ellilífeyrisþegi..
Sel um er mér eigi
á þessum degi,
Nema -
brenndar brýr að baki
og *****ur í laki.
laki mínu meyjarnar á
mása allar nætur
lostafylltar liggja mér hjá
- landsins bestu dætur
Dætur landsins liggja hjá
í lágumreistum kofa
Fætur andans tryggja sjá
Bakkus-Mammon lofa
Lofa þær hinn langa háls,
lipran fákinn seyða
hann mun skemur híma frjáls,
hafður brátt til reiða
Reiða hefur konu kysst
kvennaljóminn.
Þá hefir ófá mærin misst
meydóminn.
Meydóminn ég misskildi lengi
hélt ég væri vangefinn
Hélt ég að sá dóminn fengi
sá, er væri kvonfenginn
meydóminn sveindóninn varfærinn virti
varúð af
sveindóminn meyblóminn hiklaust hirti
meðan hann svaf
[nújæja, ruglubulli varð fyrri til]
kvonfengin, kvonsvikinn, valinn
kveinka ég mér
kversvegna er ég kvalinn
kvona - af þér?
Þér var ósköp þykkjubykkja
þetta líkt.
„Löng röð“ verður lykkjuskikkja;
lagst og sníkt.