Áðan ætlaði ég að fara að lesa aftur félagsrit eftir hlewagatiR, sem ég sá á Gestapó fyrr í dag. Þá tók ég eftir því að umrætt félagsrit var horfið. Og ekki nóg með það, búið var að eyða öllum félagsritum hans og myndin af honum er farin líka. Eftir sitja aðeins innleggin hans með spurningarmerki í stað myndar.
Hvað er nú hlaupið í kappann? Er hann farinn í enn eitt fýlukastið? Var einhver að veitast að honum í dag?
Ef einhver veit orsökina fyrir brotthvarfi hlewagastiRs væri gaman að fá svarið hér.
Dularfullt mjög en í ljósi sögunnar eru svona atburðir eiginlega hættir að koma á óvart. Þó er þetta frábrugðið því eigi er að þessu neinn augljós aðdragandi, öfugt við það sem áður hefur verið. Í huga vorum er núna ljóst hver er duttlungafyllstur gesta hjer.
Þú ættir að naga af þér hausinn, bölvaður.........................
Þá er það staðfest, Hlebbi er Smábaggi. Það getur bara ekki verið að Hlebbi myndi herma svona eftir Smábagga nema sami hausinn hugsi fyrir þá báða.
Það segir sig sjálft enda eru þeir báðir Glúmur.
Slær sig í hausinn Auðvitað! Hvernig gat ég gleymt því???
Jæja yfir hverju var hann að dramadrottningast í þetta skiptið?
Það segir sig alveg sjálft að það borgar sig ekki að draga ályktanir útí loftið.
Augljósasta skýringin hlítur að vera rétt, að hlebba hafi verið rænt af óvinum ríkisins, og að við ættum að setja allt í gang við að leita hans og bjarga.
Hann er jú Gestapói er það ekki ?
Setur RASSAT í viðbragðsstöðu
Jæja yfir hverju var hann að dramadrottningast í þetta skiptið?
.
Ósáttur við okkur hinar dramadrottningarnar...e-ð var verið að eigna honum drama sem hann vildi ekki kannast við.
Nú var það svo ómerkilegt? Æj, það er svosum honum líkt.
Hann snýr aftur í einu formi eða öðru.
Ég gat ekki lesið út úr síðasta félagsriti hans að hann væri að kveðja.
Er ekki rökrétt að þetta sé Limbra að kenna? Auga fyrir smið eða eitthvað svoleiðis.
Jæja yfir hverju var hann að dramadrottningast í þetta skiptið?
.
Ósáttur við okkur hinar dramadrottningarnar...e-ð var verið að eigna honum drama sem hann vildi ekki kannast við.
er þetta þá útaf nasistabullinu?
Svo virðist vera sbr. athugasemdirnar við nýjasta fjelagsrit nasistans svo og fyrsta fjelagsrit hans.
Er ekki rökrétt að þetta sé Limbra að kenna? Auga fyrir smið eða eitthvað svoleiðis.
Þetta hlýtur að vera mér að kenna.
er þetta þá útaf nasistabullinu?
Örugglega.
-----------------------
Mín saga er svona:
Nasistinn setur fram kvæðið sitt.
Ég legg fram mitt innlegg sem spyr hvort þarna sé ekki Hlebbi á ferð í dulbúningi enda snildar vísusmiður og hátt þenkjandi á pólitíska sviðinu.
Hlebbi gerir athugasemd við slíkar ágiskanir og sendir mér einkapóst og krefur mig afsökunar á spurningunni sem hann túlkar sem fullyrðingu.
Ég neita að afsaka mig með svarbréfi því sem sést í heild sinni í nýju félagsriti Nasistans.
Hlebbi fer án frekari orðaskipta við mig.
-
----------------------