Já ég hef ákveðið að láta reyna á hæfileika mína til að halda svona spurningakeppni eins og þær sem hafa verið svo vinsælar hér upp á síðskastið. Ég svara bara Já og Nei og hinu ómissandi Veit ekki. Ég get ekki verið alltaf loggaður inn og bið ykkur því að sýna mér smá biðlund.
Ég spyr um bók.
Er höfundur hennar ættaður úr Svarfaðardal?
Mun bókin skáldsaga vera ?
Ég veit. Þetta er ævisaga Theódórs Friðrikssonar: Í verum.