Þessa spurningu fékk Hvæsi senda í rafræna pósthólfið sitt og verð ég að játa að ég er ekki bestur í íslensku, en mér finnst eitthvað bogið við þessa setningu.
Reynir að rétta hana af með handafli
Hvað segja snillingarnir hér ? Hvort segi ég "langar þér" eða "langar þig" ?
Klórar sér í höfðinu
Mig langar.
Hvað varst þú beðinn um að reiða fram margar krónur í sms formi til að hljótast sá heiður að fá fríann bíómiða á mynd sem sýgur meira en pólsk portkona?
Ég bara sá ekki tilganginn í því að opna svona sorapóst og get því ekki svarað því hvað það myndi kosta.
En þetta er víst flott gróðaleið, kaupa 10 bíómiða á 8,000kr , segja svo 200 manns að senda sms á 200kr per. stk.... þá er maður kominn í gróða.Ljómar upp
Og fyrst þetta eru íslenskukröfurnar, þá getur ekki verið erfitt að stofna svona gullnámu. Ljómar enn meira upp en þó með smá kaldhæðnistón
Það þarf ekki mikið til að fá vinnu við svona fjölmiðlun fyrst maður fær svona póst sendann.
Hvað segja snillingarnir hér ? Hvort segi ég "langar þér" eða "langar þig" ?
Langar þig. En best er auðvitað að segja Langar yður Ljómar upp.
Stefnir löngun yðar til að horfa á biograf? er setning sem verður ei við slegið.
Má ekki bjóða yður á biograf-sýningu? er einnig sterkur valkostur.
Og svo er Biograf-sýningu vil ég bjóða yður á alltaf klassi.
Fer að speglinum og tekur til við að æfa Upptökulínur eða Veiðilínur
(enska pick-up lines)
Skulum vjer fara á sjálfrennireið oss að sjá hreyfimynd í kvöld ?
Fjölmiðlar eru að fara í rassgatið á ömmu djöfulsins. Um daginn sá ég "Mér hlakkar til sumarsins" sagt af fréttakonu á RÚV. Ég vissi ekki hvert ég ætlaði. Ég sem hélt að þessi villa væri aðeins gerð af geldingum og hálfvitum.
Mér hlakkar til að mig hlakki til sumarsins, annars ætla ég að skipta mér ekki af mínum mig.
Ég hlakka nú bara ekkert til.
Míns hlakkar til.
Minns líka.
Mér kvíðir fyrir sumarinu
Sumarið er komið Gefur frá sér vellíðunarstunu en mér leiðist í bíó, sama og þeggið.
ég er að spá í að bíða með að sjá myndina þar til hún verði sýnd í samkomusal krossins.ég efast ekki um að Gunnar kross muni sýna myndina
Vonandi mun Gunnar frelsa þig undan litlitlirstafiríupphafisetninga syndinni.
Hvað þá gleymapunktiílokmálsgreinar syndinni.