Gott kveld góðir hálsar.
Á þessum fallega degi maímánaðar langar mig að kynna sjálfan mig. Ég heiti Pluralus W, sem er þó engan veginn ætlað að gefa í skyn að ég sé fleiri en einn. Ég hef þegar rekist á nokkra úr ykkar hópi og hafa þeir árekstrar fengið mig til að skrifa þessa kynningu. Ég ætla nú ekki að hafa þetta langt en vona jafnframt að ég sé velkominn í ykkar hóp.
Hneigir sig djúpt og virðingarfyllst
Svona háttprúð kynning verður þér til frama. Velkominn!
Vel gert.
Gefur Pluralus kisuklapp á bakið
Það var rétt! Svona á þetta að vera. Vertu velkominn.
Tekur í hendina á Pluralus
Virðingarverð kynning. Þér verður ekki hent fyrir ljónin að sinni.
Velkominn.
Stekkur upp á borð og fagnar
Takk allir, takk
Fattar að enginn sér hann upp á borði og stígur skömmustulega niður
Góð kynning væni. Velkominn skaltu vera.
Þó á ég eftir að eyða u.þ.b. 8 mínútum í reyna að komast að því hvers alteralteregó þú ert áður en eitthvað annað fangar huga minn. Táslurnar mínar t.d.
Góð kynning væni. Velkominn skaltu vera.
Þó á ég eftir að eyða u.þ.b. 8 mínútum í reyna að komast að því hvers alteralteregó þú ert áður en eitthvað annað fangar huga minn. Táslurnar mínar t.d.
Jæja. 8 mínútur eru liðnar. Hvað er alteralteregó? Rosalega eru táslurnar þínar heppnar að fá alla þessa athygli!

Alteralteregó er... þú. Ég er aftur á móti bara alteregó. Skilurðu?
En þú virðist vera ágætt alteralteregó. Þú verður fullkomið alteralteregó um leið og þú áttar þig á að táslurnar mínar eiga alla athygli sem þær fá 100% skilið. Ég er með sætustu táslur í heiminum!
Vjer bjóðum yður hjer með formlega velkominn. Yður mistókst með kynningu þessari að komast á listann yfir óvini ríkisins Ljómar upp.
Heyrðu Vlad er hægt að fá að sjá þennan magnaða lista.veltir því fyrir sér hverja sé óhætt að tala við og hvort hann sé sjálfur á listanum
já og velkominn P.W.
Velkominn Píví
Kynningin lofar góðu þannig að ég býð P.W. velkominn.
Ég verð að byðja fólk um að kalla mig ekki Píví eða P.W. Bróðir minn heitir P.W. og á ég erfitt með að horfa til þess að vera kallaður hans nafni. Ef ágætir gestapóar telja sig neydda til að stytta nafn mitt væri ásættanlegt að það væri stytt í Pl. Takk fyrir.
Líkir eftir manni með trjáklippur PWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPW
PWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPW
PWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPW
PWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPW
PWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPW PWPWPWPWPW
PWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPW
PWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPW
PWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPW
PWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPW
PWPWPWPWPWPWP WPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPW
PWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPWPW
Grípur um kvið sér, leggst í fósturstellingu á jörðina og veltist um, emjandi af hlátri