Sópar upp brotinni heimsmynd sinni
Sópar upp Hakuchi
Sópar upp brotinni heimsmynd sinni
Sópar upp Hakuchi
...nice.
Hananú - eruð þið fáráðlingarnir nú búnir að grafa upp eina staðinn á alnetinu þar sem maður gat farið og stolið sér efni í friði?
Alltaf þurfið þið að eyðileggja allt fyrir manni.
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
úbbs.
Talandi um svipað efni en er ég (loksins) fletti Blaðinu í dag þá rek ég augun í litla mynd á blaðsíðu 26 sem ég kannaðist við úr frétt hér á Baggalúti
Í Blaðinu er verið að fjalla um offitu barna. Talandi um að leita ekki langt yfir skammt Styður báðum höndum á mjaðmir, hallar sér aftur og hlær eins djúpum hlátri og unnt erAuðvelt er að gúgla eftir slíkum myndum en tilviljun... ? nei ég held ekki..
Þá er Kristmann búinn að sjá að sér.
Hann skrifaði meira að segja afsökunarbeiðni í kjölfar fjölda ummæla sem bárust á síðu hans frá hæstvirtum innipúkum Gestapó. Afsökunarbeiðnina má sjá á slóðinni fyrir neðan
Það er sorglegt að sjá svona lagað gerast en eins og maðurinn sagði: "svona skeða hlutirnir"
Hann er maður að meiru með slíkri gjörð.
Kemur allt of seint inn í umræðuna
Ha? Umgjörð?
Kemur allt allt of seint í umræðuna
Er RASSAT í málinu ?Klórar sér í höfðinu
Hvaða efni var það sem stolið var?
Það er sorglegt að sjá svona lagað gerast en eins og maðurinn sagði: "svona skeða hlutirnir"
tryllist úr hlátri
Oj bara... og þið bara fyrirgefið honum sisona? Huh...
Hvaða efni var það sem stolið var?
Þetta voru nokkrar fréttir frá ritstjórn:
Datt óvænt í það
Hommaveiðitímabilið hafið
Töframaður talinn af
Hagnaðist um 64 milljarða
og kannski ein í viðbót.
Síðan voru 2 síðu 6 strákar einnig teknir ófrjásri hendi.
http://www.baggalutur.is/6.php
http://www.baggalutur.is/6.php?&start=2
En það er fyrir öllu að menn sjái að sér. Það er ekki öllum gefið að viðurkenna svo fúslega að hafa haft rangt við.
Það er nú lágmark að tilgreina hvaðan snildin er komin.Það er ansi lélegt að eigna sér annara manna verk bara sí svona
Hver stelur hverju, hvar og hvenær? Er ekki allt meira og minna stolið þegar út í það er farið?
Hér er t.d. frétt sem er með augljósum höfundareinkennum ritstjórnar Baggalúts:
Þegar ég las þessa Moggafrétt var ég framan af tvístígandi í afstöðu minni gagnvart því hvort hún er stolin af Baggalútsmönnum, en þegar fram kom nafnið Ólafur Dýrmundsson var ég ekki lengur í vafa. Annar möguleiki er reyndar að hún eigi uppruna sinn að rekja til vikuritsins Andrés Önd og félagar.