Sælir samverjar.
Ég hef áhveðið að deila með ykkur þeim ljóðum sem ég hef krassað í gegnum tíðina.
Þristur fjarki ás er 1.
Tía, tólfa, tvistur.
4 er fjöldi stafa í einn.
Ásinn hann er fyrstur.
Tugir hafa tvo í sér.
Allt frá 0 til 9.
Fjöldi stafa í ljóði hér
er hundraðfjörtíu og níu.
Rauðsokkurnar rosknar standa.
Þykir mér þær skapmikklar.
En þætti það nú nýlunda,
ef þær stæðu uppréttar,
meðan þær hlanda?
Me hablo Espané.
Úff ég féll á kné,
Þegar spænsku próf leit á...
og þú súru einkunn sá.
Ef þú gleypir mikið loft og þarf að lostna gustinn við.
Æj góði bestu rektu við og hunsaðu allan mannasið.
Þegar barn í jötu borið var.
Fljótt þar mættu vitriningar.
Reykelsi, myrra og gull.
Jatan hún var full.
En nú tvær aldir eru liðnar.
Er við minnumst fæðingu Kristar.
Með veraldlegum pökkum
við kristni okkar þökkum
Konur mega ey sýna,
bossa stinna fína.
Góða, farðu peysu í.
Þú lookar eins og gína.
Rauðsokka var hún, karlana bar hún.
Tók af sinn farða og lamdi hann Barða.
Hún ílla var snyrt en vel var hún gyrt.
Hún vildi kalla sig Bríet.
Kona farð’að vinna.
Börnum þínum sinna.
Þrífa, skrúbba, bóna.
Rétt’ karli þínum skóna.
Punktur, punktur, komma, strik.
Setjum á hana hendur.
Look svo mönnum stendur.
Maginn mjór, brjóstin stór.
Heilinn alveg súper sljór.
Hár, hár, hár...
Nú er stúlkan klár.
Dæmigerður kveðskapur sem heyrist klukkan rúmlega 4 að nóttu. Hrökklast aftur á bak og hrasar við Er ekki einhver bragfræðispekingur sem getur sagt okkur hvernig til tókst hjá Steinkunni?
Ég þykist ekki vera bragfræðispekingur en mér þykja þetta flottustu vísur sem hér hafa sést.
Ég er ansi hræddur um að það þurfi e-ð annað og meira en bragfræðispeking til að greina þessi ósköp. Mig grunar jafnvel að þetta gæti verið bragfræðispekingur að sýna listir sínar í einlægum brotavilja. Og þó. Þetta er eiginlega of súrt til þess. Það er einhver hreinræktuð viðleitni þarna á bak við.
Punktur, punktur, komma, strik.
Setjum á hana hendur.
Look svo mönnum stendur.
Maginn mjór, brjóstin stór.
Heilinn alveg súper sljór.
Hár, hár, hár...
Nú er stúlkan klár.
þetta er hrein og klár snilld og þeir sem ekki sjá það ættu að fara beint til augnlæknis..
Upprifinn hefur talað.
Já auðvitað. Ég sé það núna. Ég sé líka að ég á síðasta andvarp á 17 efstu þráðum. Það er nú aldeilis gaman.