Baráttukveðjur verkalýður og kommúnistar.
1. maí baráttudagur, allar dagar baráttudagar.
Ræskir sig
Fram þjáðir menn í þúsund löndum,
sem þekkja skortsins glímutök.
Nú bárur frelsis brotna á stöndum,
boða kúgun ragnarök!
Tekur undir af fullum krafti
... Fúnar stoðir burt vér brjótum!
Bræður! fylkjum liði í dag
Vér bárum fjötra en brátt vér hljótum
að byggja réttlátt þjóðfélag.-
Dýpkar bassann
Þó að framtíð sé falin,
grípum geirinn i hönd!
Því Internationalinn
mun tengja strönd við strönd!
Kórinn tekur undir
Á hæðum vér ei finnum frelsi,
hjá furstum eða goðaþjóð;
nei, sameinaðir sundrum helsi
og sigrum, því ei skortir móð....
...Alls hins stolna aftur vér krefjumst,
ánauð þolir hugur vor trautt,
og sjálfir brátt vér handa hefjumst
og hömrum meðan járn er rautt
Enn einn frídagurinn Ljómar upp
Traðkar á réttindum almúgans og flytur inn eistneska verkamenn
Kemur fyrir rottugildru við stjórnarráðið og hleypu síðan strax í felur. Óttast að að verða sakaður um að myrða ríkisstjórnina.
Til hamingju með afmælið mamma!
Er 1.maí mamma þín? Klórar sér í höfðinu
Tjah... hún allavega fæddist þá.
Hjálpar Dordingli að klóra sér í höfðinu
Lifi byltingin! Niður með gagnbyltingarmenn hvítliða og auðvaldið sem stendur á bak við þá! Allt vald til Sovétanna! Lengi lifi félagi Ulanov, heim kominn úr langri útlegð! Lengi lifi félagi Bronstein og stórkostleg herför hans gegn gagnbyltingarsinnum! Lengi lifi félagi Dzugashvili, mannvinurinn frá Georgíu! Áttar sig á að það er kominn 2. maí, blótar herfilega og rífur hár sitt og kastar kaskeitinu í gólfið Skrambinn!
Iss, fólk getur sjálfu sér um kennt. Það er ekki kúgaranum að kenna að fólk er svona auðveldlega kúgað!
Mér hefur alltaf þótt afskaplega vænt um alþýðu þessa lands. Þvílíkur þróttur og atorkusemi fyrirfinnst vart þó víðar væri leitað.
dregur djúpt andann og lokar augunum til að leggja áherslu á orð sín