Freka hitti feita drós
faldar hvatir vakti.
Ætíð þáði hennar hrós
héldi skvapið takti.
taktinn ekki missa má
í miðjum klíðum
gætað ýmsu þurfum þá
þungum ríðum
Ríðum þar til rænu glata
rennilegar gellurnar
Skrítið, að þær skuli rata
skortir heilasellurnar.
Sellur þínar sviðnar vel
soðinn þanka koppurinn
Merkilegan mann þig tel
...Meiriháttar!....TOPPURINN!!!!
Toppurinn þar tolldi við
Tungusveitardrauminn.
Vímus Nafna veitti lið
votan skar á tauminn.
Taumi þeim ei tognar á
tárum engum veldur
Það sem ekki þrællinn má
það máttu varla heldur
Heldur betur herða verð
halta þrælinn lata.
Komast skal á fína ferð
fordinn átta gata.
gata heitir Garðastræti
girt með húsaskriflum
óma þaðan eilíf læti
enda búin fíflum
fíflalegt er flest í dag
farið sumar aftur
á veðurfari lítið lag
laus er vindakraftur.
Vindakraftur veit ég er
voðalegur niðrum mig.
Hefuð vömbin gusta ger
gyllinæð og þarmasig.
Þarmasig og þunnar hægðir,
þjaka mig og buga.
Sínar hefur lífið lægðir,
lyfin ekkert duga.
Duga skammt og duga ei
drullu-stýri-pillur.
Innihald í iðrum, svei,
allt með sínar dillur.
Dilla sér dömurnar kátu,
dásamlega sá hnátu,
úti við eldgamla bátu,
uppvið stafn mávarnir sátu.
Sátu tvö á tyllidag
Tommi litli og Stína
Sungu lítið sálmalag
um sumardaga fína
Fínir drættir fátíðir
fyrir gamla karlinn,
Helst um jól og hátíðir
hjakkast gamli jarlinn.
Jarlinn harða höfum vér,
harla góðan, yfir oss.
[obbossí... pínulítil ofstuðlun... Skabbi]
Jarlinn böllinn harðan hefur
hvín í kellu ekkert ljótt,
karlinn eins og Rebbi refur
reið af krafti fram á nótt.
Næturinnar nautnabál
núna vill hún kveikja.
Liggur alein, heit og hál
hungrar mjög til leikja.