Kæru gestir þessa spjallborðs,
Mér var kennt sem unglingi að kynna mig þegar ég mæti á nýjar slóðir. Eftir það gekk mér miklu betur í lífinu.
Ég er Sjálfsmorðinginn, viðurnefnið fékk ég á unglinsárum, og ætti það að útskýra sig að mestu sjálft. Við mætti bæta að 27 leiðir hafa brugðist mér, og ákvað ég þá að drepa frekar sjálfið en sjálfan líkamann. Hvernig gengur á eftir að ráðast.
Ég villtist hingað inn og sá eftir nokkurn lestur að hér eru mörg sjálf, mis árásargjörn. Fyrsta skrefið í sjálfsmorðinu er að vera hér inni sem annað sjálf. Það sjálf tæki svo fljótlega við af hinu gamla og ónýta. Svo er bara að sjá hvort það sjálf er nægilega gæfuríkt til að haldast.
Gaman verður að kynnast ykkur nánar.
Velkominn.Vonandi að þessu sjálfi þínu eigi eftir að vegna vel
xT
"Velkominn.Vonandi að þessu sjálfi þínu eigi eftir að vegna vel"
Þakka fyrir góða kveðju. Hvaða umræðu efni eru hér skemmtilegust? Er kannski ekki við hæfi að ræða dag og veg á degi þessum? Sit reyndar og borða nautakjöt á FÖSTU degi, þannig að fyrst byrjað er að brjóta reglur er lítið að því að halda því áfram.
Komdu sæll... það er ekki hægt að drepa sjálfan sig á þessum vef.
Minnist stunda sinna á steikarpönnunni
"Kargur: Velkominn. ‹íhugar hvort Ég sjálfur viti af þessu›"
Þakka kveðjuna. Ertu að vísa til míns fyrra sjálfs, núverandi sjálfs, þíns eigin sjálfs eða..?
"aulinn: Komdu sæll... það er ekki hægt að drepa sjálfan sig á þessum vef. ‹Minnist stunda sinna á steikarpönnunni›"
Sæl, enda drap ég það áður en ég mætti, en þökk fyrir ábendinguna.
Þú ert nú heldur dapur.... ég skal kæta þig!
Nuddar á Sjálfsmorðingjanum bakið og matar hann með vínberjum
"aulinn: Þú ert nú heldur dapur.... ég skal kæta þig! ‹Nuddar á Sjálfsmorðingjanum bakið og matar hann með vínberjum›"
<roðnar ógurlega> Það er naumast fólkið er vinalegt hér um slóðir. <hámar í sig vínber og slaknar óðfluga>
Smá ráð... smelltu á "vitna í" ef þú vilt svara einhverjum sérstökum. Og við hliðina á svarglugganum eru svið.
Flissar örlítið af nýliðanum en heldur nuddinu áfram
Smá ráð... smelltu á "vitna í" ef þú vilt svara einhverjum sérstökum. Og við hliðina á svarglugganum eru svið.
Flissar örlítið af nýliðanum en heldur nuddinu áfram
Lærir svo lengi sem lifir! Er yfir sig ánægður að hafa hitt svo hjálplega dömu tímanlega
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Vertu ekkert að misskilja neitt hérna, ég er yfirleitt vond við nýliða.
Grunar að hún sé komin með flensu
Roðnar óstjórnlega og borar annarri stórutánni ofan í gólfið
Vertu ekkert að misskilja neitt hérna, ég er yfirleitt vond við nýliða.
Grunar að hún sé komin með flensu
Þakkar lukkunni hve heppinn hann er Mig grunar að jafnvel þegar þú ert "vond" sértu ægifögur. Líkt og sagði í Hringadróttins sögu "Allir munu elska mig og örvænta!"
Lítur yfir aðra þræði
Hmmpff... segðu þetta frekar við Ísdrottninguna!
Verður skyndilega afbrýðisöm og veit ekkert hvað er að gerast fyrir sig
Lítur yfir aðra þræði
Hmmpff... segðu þetta frekar við Ísdrottninguna!
Verður skyndilega afbrýðisöm og veit ekkert hvað er að gerast fyrir sig
Ég er líkt og lamb í nýjum haga, undrast fegurð blómanna sem þar eru. Eldur er jafnfagur ís þótt mikill sé munur á þeim. Og ég hef fengið að kynnast ylnum frá þér, en eigi nema ásjónu hennar. Afbrýðissemin er því óþörf, en ég veit þó vel að varla er ég einn um að sitja við fótskör þína og njóta nærverunnar.
Býður aulanum rósavönd til að skreyta ægifagran makkan
Já nei! Nú hefst busunin!
Setur Sjálfsmorðingann í ól og dregur hann eftir götunni
Hlær nornarhlátri eins og Norninni einni er lagið
Já nei! Nú hefst busunin!
Setur Sjálfsmorðingann í ól og dregur hann eftir götunni
Hlær nornarhlátri eins og Norninni einni er lagið
Röltir með leiðitamur Hver gæti valið sér betri húsbónda!
Þú ert nú meiri karlinn! Bara orðin og ekkert annað.
Leysir tauminn og tárast