Hvenær skal hann vera haldinn? Er hægt að mæla okkur mót á eitthverjum stað? Svo gæti ég nú alveg haldið eitt stykki hitting eftir 27 apríl.
Ég á enn eftir að sverja marga til Riddara Aulans!
Saumaklúbbur? Nei það held ég nú ekki... heldur ridda reglan mín.
Tuma Tígur, Slopp, Lærða-Geöff... mig minnir Þarfa og Bangsimon.
Uss, þetta eru allt strákar, ég krefst þess að verða ridduruð við fyrsta hugsanlega tækifæri!
Já kvenkynsgestapóar eru óduglegar að mæta á hittinga... fyrir utan okkur Önnu þó.
Já, það er rétt. Af hverju ætli það sé? Starir þegjandi út í loftið
Kannski við séum vitlausar Anna?
En ekki mjög fast.. þó aðalega Slopp.
Neh, viðurkennum bara staðreyndirnar, ég er grúppía og þú ert alki!
Já kannski það sé málið?
Eða þá að við skemmtum okkur bara svona svakalega vel!
Já... enda er ég að plana annan hitting!
Af hverju vorum vjér slegnir fastar en aðrir? Vjér líðum enn fyrir það!
En vjér skráumst hjér með á hitting þann, er hugsanlega verður hið fyrzta!
Það þarf að gera þig að karlmanni Sloppur minn.
En það skal sko vera fjör á næsta hittingi!
Minns langar líka að koma þ.e.a.s ef tíkin verður ekki búin að setja mig á hausinn.
Aular slá menn bara til aula, sem-sagt menn hafa verið aulaðir. Þetta hefur að sjálfsögðu ekkert að gera með hina göfugu riddarareglu. Á Baggalút er aðeins einn Konunungur einn Forzeti og einn Riddari. Þannig viljum við hafa það. Vinsamlegast varist eftirlíkingar. Riddarinn. Úje..!..