Hvaða vitleysa, ég veit fyrir víst að þriðja táin á vinstri fæti heitir Þórður.
Ég nefni tærnar alltaf eftir sitjandi ríkisstjórn (með nokkrum reglum sem ekki verður farið út í hér.)
Svo, víst hafa tærnar nöfn.
-
Samkvæmt Táfræðibók Arnars og Örlyga eru nöfnin á tánum eftirfarandi:
Á hægri fæti (talið frá vinstri ef horft er ofan frá og niður á eigin tær):
Þumaltá, vísitá, langatá, baugtá og litlatá.
Á vinstri fæti (talið frá vinstri ef horft er ofan frá og niður á eigin tær):
Aktá, hlauptá, klesstá, skjóttá og hræktá.
hmmm...
Ekki stendur eithvað þarna um það hvernig á að fara að því að draga grunlaust kvennfólk á tá(lar)?
og muna... kalt hvítvínsglas
Samkvæmt annáli læknasambands Íslands er spekin Þú getur ekki farið þér að voða með það sem þú veist ekki mikil metin innan vébanda félagsins.
Ku hún vera valdur þessarar vanþekkingar íslenska lýðsins.
Þó hún skýri reyndar ýmislegt annað hvað varðar þetta blessaða háskólasjúkrahús...