Sæl og blessuð!
Langar til að kynnast ykkur.
Skráði mig inn, því Baggalútur er flott sveit og töff.
Hér er líka kveðið dýrt. Það vil ég gjarnan læra.
Kurteisi að kynna sig,
komin er á svæðið.
Gaman væri að þekkja þig!
en þannig hljómar kvæðið;
Valinkunn og vingjarnleg
vandlát, semur bögur.
Heilsteypt er og heiðarleg
hlý og kát og fögur.
Glæsileg innkoma!
Hjartanlega velkomin fróma dama.
Hneygir sig virðulega
Megi dvöl þín veita þér gleði í þessu skálkaskjóli stafrænna sýruhausa.
Já já, þú mátt alveg vera velkomin og allt það en vertu bara skemmtileg og ekki hætta eftir tvo daga. Hristir hausinn yfir lélegri endingu nýliða undanfarið og hristir svo spaðann á Vöndu
Vertu velkomin Vanda og njóttu vel..!..
Þakka þér Hakuchi! (Tekur í síða pilsfaldinn, hneygir sig djúpt og lýtur höfði.)
"Skálkaskjól stafrænna sýruhausa."
Flott sagt. Þetta er einmitt það sem ég þarf að læra.
Á mínu einfalda máli; Góð afsökun fyrir léttgeggjaða netfíkla.
Um leið og vjer bjóðum yður hjer með formlega velkomna viljum vjer taka skýrt fram að það er tóm vitleysa (líklega grín) hjá Hakuchi að hjer sje að finna sk. 'stafræna sýruhausa'. Hjer sjest aldrei neitt bull, einungis háalvarlegar umræður og það án þess að það komi fyrir umræðuefnið sje lítilsvirt með því að hafa það að háði og spotti.
Anna Panna.
Nei ég ætla ekkert að hætta eftir tvo daga!
Fer samt í vinnu og svoleiðis.
En vittu til ég kem aftur og aftur.
(Tekur í spaðann á Önnu Pönnu) hehe fyndið! Hæ og gaman að sjá þig!
Velkomin Vanda.
Langar þig vera þumall?
Já takk fyrir Heiðglyrnir.
Er strax farin að njóta mín vel hér hjá þér.
Takk fyrir Isak Dinesen.
Má spyrja?
Varst það ekki þú sem skrifaðir bókina í nafni karlmanns?
Jarmi ekki hræða dömuna svona strax á fyrstu mínútunum!
Fyrirgefðu baugfin... ég meina Anna Panna. Mér leist bara svo assgoti vel á hana Vöndu.
Jarmi ekki hræða dömuna svona strax á fyrstu mínútunum!
Hræða ? Hún má þakka fyrir að Frelsishetjan er eigi á svæðinu. Því er rjett að nefna (sje nýliða þessum það ókunnugt) að yfirleitt er tekið nokkuð sjerkennilega (*) á móti nýliðum hjer.
(*) Sjerkennilega í augum nýliða. Eldri Bagglýtingum þætti hins vegar afar sjerkennilegt ef einhver nýliði fengi ekki slíkar móttökur.
Skemmtilegur ertu! Vladimir Fuckov:
Sætt sagt hjá þér, þegar þú býður mig velkomna, svo eitthvað hátíðlegt!
Já ég skil ábendingu þína, (hehehe, afsakið ( Reynir að fela brosið))
Hér eru bara umræður í hávegum hafðar á háalvarlegum nótum.
Já auðvitað, bjóst ekki við neinu öðru. (Kýmir samt í barmi sér)
Takk fyrir Isak Dinesen.
Má spyrja?
Varst það ekki þú sem skrifaðir bókina í nafni karlmanns?
Ég er karlmaður sem hef skrifað ansi mörg (einstaklega vönduð) félagsrit í nafni konu sem bar nafn karlmanns, undir hvers nafni hún skrifaði bókina sem þú ert að hugsa um.
Skemmtilegur ertu! Vladimir Fuckov:
Sætt sagt hjá þér, þegar þú býður mig velkomna, svo eitthvað hátíðlegt!
Já ég skil ábendingu þína, (hehehe, afsakið ( Reynir að fela brosið))
Hér eru bara umræður í hávegum hafðar á háalvarlegum nótum.
Já auðvitað, bjóst ekki við neinu öðru. (Kýmir samt í barmi sér)
Kýmir hlýtur að vera dregið af sögninni að koma. Kemur í barm sér. Vertu hjartanlega velkomin Vanda en gættu minna handa.