— GESTAPÓ —
Aðdáendaklúbbur Kolinns Förþþ
» Gestapó   » Dægurmál, lágmenning og listir
     1, 2  
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
krumpa 11/3/06 21:25

Í ljósi nýskeðra atburða þar sem einhver lúði og aukvisi reyndi að stela Herra Darcý hef ég opnað þessa löngu tímabæru aðdáendasíðu!

Hér má tala fallega um Kolinn, koma með myndir af honum, tala um drauma um Kolinn, og soleiis sko.

Aðalfundurinn verður svo haldinn í símaklefanum á horni Pósthússtrætis föstudaginn 13.

Góða skemmtun!

Förþþ ekki Farrell!

Fyrir hönd Bridgetar Jóns og annarra ástsjúkra kvensnifta,
krumpa.

Ps. af hverju í fjáranum gengur mér alltaf svona illa að setja inn myndir !?!?!

Kenni samt Heittelskuðum um - það er eitthvað ákaflega annarlegt myndaforrit í tölvunni hans....

Keisaraynja Baggalútíska heimsveldisins. Langflottust. Framkvæmdastýra hinna keisaralegu aftaka. Pyndingameistari. Yfirgrúppía. • Eigandi Billa bilaða, hirðkrútts og keisaralegs gæludýrs. Er pirruð að eðlisfari. Heimsyfirráð eða dauði !
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 12/3/06 02:10

Það tilkynnist hjer með opinberlega að vjer erum af röngu kyni til að ganga í klúbb þennan. Á það jafnframt við um fleiri Bagglýtinga (ef að líkum lætur). Sje stofnaður aðdáendaklúbbur þarf aðili sá er klúbburinn snýst um helst að vera kvenkyns auk ýmissa fleiri skilyrða til að hugsanlegt sje að vjer göngum í viðkomandi klúbb.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 12/3/06 05:58

‹Hengir upp myndir af beru kvenfólki útum allt og laumast út›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Jarmi 12/3/06 10:03

krumpa mælti:

Ps. af hverju í fjáranum gengur mér alltaf svona illa að setja inn myndir !?!?!

Þér gæti gengið betur ef þú myndir setja rétta slóð að myndinni. Þú settir slóðina að síðunni með myndinni, virðist vera.

Jarmi - 110 oktan og helblekaður á því. Dólgur.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
krumpa 12/3/06 10:20

Jarmi : ég er nú meiri asninn ‹Glottir eins og fífl›

Kæri Vlad, ég veit bara því miður ekki um neinar konur sem mér finnst jafnsætar og Kolinn. En Kolinn á sér líka viðkvæma og kvenlega hlið svo að þú ættir nú alveg að geta verið hérna. Auk þess er þetta ekki kynferðislegur klúbbur, heldur gengur hann út á það að segja fallegt um Kolinn.

Fróðleikur um Kolinn :
Kolinn er 1,87 sm á hæð og um hundraðogtuttugu kíló. Hann er giftur (eins og er - enda hefur hann ekki enn hitt mig) og átti í ástarsambandi við kjellínguna sem lék Elísabet í ALVÖRUstoltsogfordómaþáttunum.

Kolinn rúlar!

Keisaraynja Baggalútíska heimsveldisins. Langflottust. Framkvæmdastýra hinna keisaralegu aftaka. Pyndingameistari. Yfirgrúppía. • Eigandi Billa bilaða, hirðkrútts og keisaralegs gæludýrs. Er pirruð að eðlisfari. Heimsyfirráð eða dauði !
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
krumpa 12/3/06 10:24

Nebb....er ekki alveg að höndla þetta með myndirnar - þarf eitthvað að æfa mig....

Kolinn er sennilega eini leikarinn í heimi sem hefur leikið sama hlutverkið í yfir þrjátíu bíómyndum. Hann lék meðal annars stolta, þögla, ríka gaurinn í epísku stórmyndinni What a girl wants - að ógleymdum P&Pþáttunum, Bridget Jóns og Love avtually.....hver getur toppað það?

Svo er hann líka bara hrikalega sætur.....og gengur stundum með gleraugu!

Keisaraynja Baggalútíska heimsveldisins. Langflottust. Framkvæmdastýra hinna keisaralegu aftaka. Pyndingameistari. Yfirgrúppía. • Eigandi Billa bilaða, hirðkrútts og keisaralegs gæludýrs. Er pirruð að eðlisfari. Heimsyfirráð eða dauði !
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
krumpa 12/3/06 10:40

Á http://www.ithink-hesdead.net/colin/ er að finna lista yfir aðdáendur - þeir koma frá 84 löndum. Því miður er bara einn aðdáandi skráður frá Íslandi - sem er sami árangur og Afganistar eru með - en fjórum sinnum færri en skráðir limir frá Zimbawbe. Er ekki kominn tími til að bæta úr því?

Keisaraynja Baggalútíska heimsveldisins. Langflottust. Framkvæmdastýra hinna keisaralegu aftaka. Pyndingameistari. Yfirgrúppía. • Eigandi Billa bilaða, hirðkrútts og keisaralegs gæludýrs. Er pirruð að eðlisfari. Heimsyfirráð eða dauði !
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ugla 12/3/06 10:53

krumpa mælti:

Kolinn er 1,87 sm á hæð og um hundraðogtuttugu kíló. Hann er giftur (eins og er - enda hefur hann ekki enn hitt mig) og átti í ástarsambandi við kjellínguna sem lék Elísabet í ALVÖRUstoltsogfordómaþáttunum.
Kolinn rúlar!

1,87 og 120 kíló....
Er þetta einhver sláturkeppur Krumpa mín?

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
krumpa 12/3/06 10:58

Alls ekki
Þetta er glæsimenni mikið - eins og sæist af myndunum ef mér tækist að hlaða þeim inn. Auk þess er ekkert að því að hafa soldið að klípa í ....

Keisaraynja Baggalútíska heimsveldisins. Langflottust. Framkvæmdastýra hinna keisaralegu aftaka. Pyndingameistari. Yfirgrúppía. • Eigandi Billa bilaða, hirðkrútts og keisaralegs gæludýrs. Er pirruð að eðlisfari. Heimsyfirráð eða dauði !
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hakuchi 12/3/06 11:30

Þetta hljóta að vera pund. Kólinn hefur aldrei verið þekktur fyrir að vera með mikla vömb. Ef hann væri 120 kíló þá væri hann með vel væna vömb, gott ef ekki feitur bara.

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
blóðugt 12/3/06 11:35

187 cm hár og 120 pund... þá ca. 54 kg. ‹Skellihlær›

Hjarta skal mér Högna í hendi liggja blóðugt, ór brjósti skorit balldriða saxi slíðrbeitu syni þjóðans.
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Anna Panna 12/3/06 13:16

Úúúú hér er klúbbur fyrir mig að ganga í, það er sko enginn Mr. Darcy nema Kolinn Firþþ sé Mr. Darcy!

‹gengur í klúbbinn›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Furðuvera 12/3/06 13:30

Hann var nú assgoti aðlaðandi í myndinni The Importance of Being Earnest, en ég held ég segi pass.

Tish ahh nay hush and fourpence, and an extra point for being so clevaaaaaah!
GESTUR
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 12/3/06 18:58

‹Hengir upp myndir af sér útum allt.›

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
krumpa 12/3/06 20:03

Kolinn er alltaf aðlaðandi....finnst hann bestur samt þegar hann er að synda - bæði í P&P og líka í Love Actually.
Hefur flottan mallakút í svona wetwetwet dæmi..............‹Glottir eins og fífl›

Held í alvöru að hanns é kannski 90-95 kíló - en kannski væri ekki úr vegi að stofna til ágiskunarkeppni um það. Í vinning er nótt með Kolinn - á DVD!

Keisaraynja Baggalútíska heimsveldisins. Langflottust. Framkvæmdastýra hinna keisaralegu aftaka. Pyndingameistari. Yfirgrúppía. • Eigandi Billa bilaða, hirðkrútts og keisaralegs gæludýrs. Er pirruð að eðlisfari. Heimsyfirráð eða dauði !
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ugla 6/4/06 17:59

Það virðist vera svipuð aksjón í þessum aðdáandaklúbbi og þeim sem ég stofnaði hér á baggalút forðum daga. Þá var ég ung og ósnortin mey og stofnaði aðdáendaklúbb Haraldar Austmann. Komst svo að því síðar að Haraldur er fjörgömul mannæta. Mjög ósmekklegur og drykkfelldur karakter. Nánast ómennskt viðrini bara!

Það var mjög misheppnaður klúbbur og tók á taugarnar að halda honum úti...

 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 6/4/06 18:05

Ég skal splæsa á þig gervihandlegg fyrir þann sem ég át. En þú færð ekki krónu í skaðabætur því hann var ólseigur og svo stóð armbandið í mér.

Færeyingur • Einfættur • Mannæta
 • Svara • Vitna í •  Senda skilaboð Senda póst
Ugla 6/4/06 18:12

Haraldur Austmann mælti:

Ég skal splæsa á þig gervihandlegg fyrir þann sem ég át. En þú færð ekki krónu í skaðabætur því hann var ólseigur og svo stóð armbandið í mér.

Mann setur bara hljóðan með grimmd og vitskerðingu af þessu kaliberi fyrir augunum.......

     1, 2  
» Gestapó   » Dægurmál, lágmenning og listir   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: