Je minn eini! Dylan á Hróarskeldu !? Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Hvernig er hægt að sleppa þessu?!
Ég veit. Í fyrsta sinn á ævinni finnst mér freistandi að mæta á þessa drulluhátíð.
Ég segi fyrir mitt leyti að ef Roger Waters væri ekki að mæta með DSotM á klakann þá væri ég búin að kaupa miðann á Hróa, hann og Dylan eru mest spennandi atriðin þarna! Er það eðlilegt þegar maður er bara tuttuguogeitthvað?!
Segið mér... er farið að selja miða á Waters og veit einhver hvað kostar inn á þann viðburð?
Mmmmmhhhhhh Dylan!
Ég sá Dylan 1990 þegar hann kom hér á Listahátíð. Það var gaman! En nú vil ég sjá Waters! Ég vil að restin af Pink Floyd drullist til að koma hingað og spila með honum!
Dylan á Hróarskeldu... það er afbragðs afsökun til að skella sér til Baunmerkur...
Ég sá Dylan 1990 þegar hann kom hér á Listahátíð. Það var gaman! En nú vil ég sjá Waters! Ég vil að restin af Pink Floyd drullist til að koma hingað og spila með honum!
Nick Mason ætlar víst að spila með honum á tónleikum í Frakklandi og þeir eru búnir að bjóða Richard Wright að spila þar líka. Fréttablaðið í dag var svo að reyna að búa til frétt upp úr því og sögðu að það gæti alveg verið að þeir spili bara með honum í Egilshöllinni!
Það væri gaman en ekki mjög raunhæft held ég...
Og miðasalan er ekki byrjuð ennþá.

Þá er bara að sannfæra gítarkappann um að Ísland sé best í heimi...
Þá er bara að sannfæra gítarkappann um að Ísland sé best í heimi...
Þú meinar líklega "benda honum á að Ísland er best í heimi".
Blikkar kumpánlega
Hrökklast aftur á bak og hrasar við
Það er Baggalútía sem er best í heimi, eigi Ísland.
Strunsar út af sviðinu og skellir á eftir sér
Dylan í Danmörku. Ja sei sei, þá er bara að finna leiðir til að fæla burt hvimleiðu útúrdópuðu og blindfullu eilífðarunglingana af svæðinu svo hægt sé að hlýða á meistarann í friði.
Reynir að þróa víddarfærslutæki sem virkar bara á dópaða og drukkna unglinga
...því ef það er eitthvað ó-Dylanskara en dóp...þá veit ég ekki hvað það er! Brosir út að eyrum og lyftir báðum höndum upp fyrir höfuð til merkis um að sér hafi þótt þetta afskaplega fyndið