Stendur íslenska hagkerfið á brauðfótum?
Eru einhverjir fuglar að naga brauðið svo það muni falla?
Mun hrunið valda gjaldþroti bankanna og í kjölfarið gjaldþroti heimilanna?
Álver! ÁLVER... ég segi fleiri Kóbaltver frekar.... það er þó hægt að nota kóbaltið til mataríblöndunar...
Ég vissi að við værum á sömu línunni.Gefur frá sér vellíðunarstunu
Er ekki málið það að efnahagskerfið hið íslenska byggist orðið upp á því að selja og kaupa hlutabréf í hinum og þessum fyrirtækjum... Hvað gerist ef hlutabréf í einhverju af stóru fyrirtækjunum fellur? Hvað gerist, segið mér það?
Ég ætla að fjárfesta í Ákavíti... þar get ég fest fé mitt allhressilega... xT
Ég ætla rétt að vona að þú sért ekki að festa fé í Ákavíti. Frekar að leysa það út.
Klórar sér í höfðinu
... Ákavítið það er að segja.
Ég hef nú aldrei getað fest fé í neinu... ekki einu sinni í veskinu mínu. En einu sinni tókst mér að festa bílinn minn... hann losnaði aftur.
Var það eftir að þú varst búinn að leysa vel úr svosem eins og einni Ákavítisflösku?
Já og seytján blúttunnur lágu einnig í valnum.
Stendur íslenska hagkerfið bara ekki á brauðfótum, þar sem að brauðið er smurt með áleggjum?
Það sem er versti galli Íslenska hagkerfisins eru þessi krosseignatengsl. Þetta fyrirtæki á í þessu sem á svo til baka stóran hlut í því fyrrnefnda, sem á svo stóran hlut í þriðja fyrirtækinu sem á svo hlut í fyritæki tvö...... Ef allt yrði nú gert upp, væru þá virkilega einhverjir raunverulegir peningar eftir??
Íslenska hagkerfið er heimsins stærsta pýramída hagkerfi.
Það hlýtur þá að vera öfugur pýramídi, því hann er alveg að hrynja...
Klórar sér í höfðinu
...
Ljómar upp
Hagkerfinu myndi ég frekar líkja við spilaborg frekar en eitthvað brauðmeti. Menn hamast nú við að reisa spilaborgina upp í hæstu hæðir og brátt mun hún hrynja af eigin þunga. Það yrði þó altént ekki í fyrsta skipti sem slíkt gerist...