— GESTAPÓ —
Að gefnu tilefni
» Gestapó   » Efst á baugi
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 6/3/06 14:50

Vegna fjölda fyrirspurna er borist hafa forsetaembætti Baggalútíu viljum vjer taka skýrt fram að sprenging (af falsmiðlunum kölluð 'jarðskjálfti') er varð við Krýsuvík fyrir nokkrum mínútum tengist hvorki tilraunum forsetaembættisins með gjöreyðingarvopn nje geimskip. Að öðru leyti er embættinu ókunnugt um málið og neitar að tjá sig um það ‹Lætur girða af stórt svæði við Krýsuvík til að fá vinnufrið til að hreinsa burt eldflaugabrak og geislavirkan úrgang›.

Þá er og eigi um að kenna skemmdarverki hve erfitt hefur verið að heimsækja falsmiðlana síðustu mínútur.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Furðuvera 6/3/06 14:51

Urrrr... ég þoli ekki hvað ég er ónæm fyrir jarðskjálftum, annað hvort finn ég bara örlítinn kipp eða ég sef í gegnum allt saman...

Tish ahh nay hush and fourpence, and an extra point for being so clevaaaaaah!
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 6/3/06 14:55

Eigi erum vjer vissir um að auðvelt hafi verið að finna fyrir þessu á jörðu niðri eða á jarðhæð, þetta stóð yfir í einungis sekúndubrot, a.m.k. eins og vjer fundum þetta.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Haraldur Austmann 6/3/06 14:56

♪This is Major Tom to ground control...♪

Færeyingur • Einfættur • Mannæta
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Furðuvera 6/3/06 14:57

Ég hélt jafnvel að þetta hefði bara verið vindurinn að kippa í húsið.

Tish ahh nay hush and fourpence, and an extra point for being so clevaaaaaah!
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
blóðugt 6/3/06 15:02

‹Fílar ekki náttúruhamfarir af neinni stærðargráðu›

Hjarta skal mér Högna í hendi liggja blóðugt, ór brjósti skorit balldriða saxi slíðrbeitu syni þjóðans.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Þarfagreinir 6/3/06 15:07

Sprengingin fannst hér á annarri hæð í því húsnæði er ég stunda mína vinnu í.

Þó svo að forsetaembættinu sé ókunnugt um að sprengingin hafi orðið af völdum geimskipstilrauna sinna, er ekki engu að síður hugsanlegt að hér hafi verið á ferðinni geimskip frá annarri lífstjörnu er hrapaði til jarðar?

Greifinn af Þarfaþingi • Fullur símamálaráðherra • Yfiryfirheyrslumeistari Rannsóknarréttar Skoffínsins • Sjálfskipaður últraséntilmaður og öðlingur
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Ugla 6/3/06 15:15

Hjúkk..!
Mér fannst þetta líka full dramatísk áhrif af einu rauðvínsglasi....

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Sæmi Fróði 6/3/06 15:38

Œ œ œ

Skall þar hurð nærri hælum
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Jarmi 6/3/06 16:02

Var þetta kannski bara hvæsi eftir heimsókn í rúgbrauðsgerð?

Eða Leibbi Djass að þenja nikkuna!

Jarmi - 110 oktan og helblekaður á því. Dólgur.
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Don De Vito 6/3/06 17:43

Var þetta um allt höfuðborgarsvæðið? Þetta kom allavega ekki hingað í dalinn, enda svo vel einangraður ig víggirtur...

Doninn • Stríðsmangari Baggalútíska Heimsveldisins • Innflytjendamálaráðherra, maðurinn með stimpilinn • Settur forstjóri HSHB • Stórlax
GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 6/3/06 18:08

Ég er saklaus. ‹Starir þegjandi út í loftið›

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hrani 6/3/06 18:53

En hvað var aftur slóðin á bréf Jónínu og Styrmis?

Hott hott
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 6/3/06 21:53

Eigi fáum vjer sjeð að það falsmiðlafrjettamál komi sprengingunum í Krýsuvík neitt við.

Sá eða sú er stal tveimur langdrægum flugskeytum frá oss fyrr í dag í ringulreiðinni er fylgdi sprengingunum er hins vegar beðin(n) um að gefa sig fram strax.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
GESTUR
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Hvæsi 6/3/06 22:02

Hvæsi rakst á þett fyrir algera "tilviljun" áðan og rödd í hausnum á honum sagði að sýna forzeta þetta.

http://www.blog.central.is/603moonlight?page=comments&id=1495294

Tímavjel....

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Gaz 6/3/06 22:19

Ég sakna þess að finna fyrir jarðskjálfta svona öðru hverju. Leiðinda pirr að eiga heima í svíaríki stundum. Er ekki hægt að bíða með næsta "jarðskjálfta" þangað til að ég er næst í heimsókn heim á klakanum?

"Staðreyndir hætta ekki að vera til ef þú hunsar þær." • -Aldous Huxley
 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst

Var ekki einhver sem náði að tappa þessu á brúsa?
Mig minni það endilega, athugaðu á e-bay. Einhver tyrki sem var með bás þar.
Það er meira að segja hægt að prútta hjá honum.

 • LOKAР•  Senda skilaboð Senda póst
Vladimir Fuckov 7/3/06 11:23

Gaz mælti:

Ég sakna þess að finna fyrir jarðskjálfta svona öðru hverju. Leiðinda pirr að eiga heima í svíaríki stundum. Er ekki hægt að bíða með næsta "jarðskjálfta" þangað til að ég er næst í heimsókn heim á klakanum?

Vjer getum auðvitað (gegn hæfilegum mútugreiðslum til forsetaembættis Baggalútíu) framkallað 'jarðskjálfta' (með aðstoð eliptons og viðeigandi flugskeyta) í Svíaríki berist þaðan óskir um slíkt.

Forseti Baggalútíu & kóbalt- & hergagnaframleiðsluráðherra o.fl. Baggalútíu • Staðfestur erkilaumupúki • Óvinur óvina ríkisins #1 • Virðulegasti Gestapóinn, krúttleysingi og EIGI krútt • Óafvitandi aðili ósamhverfra vensla
LOKAÐ
» Gestapó   » Efst á baugi   » Hvað er nýtt?
Innskráning:
Viðurnefni:
Aðgangsorð: